Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 98

Frjáls verslun - 01.03.2015, Page 98
98 FRJÁLS VERSLUN 3 tbl. 2015 fólk A ðalheiður Sigur­ sveins dóttir og Mar grét Gísladótt ­ ir stofnuðu nýlega ráð gjafarfyrirtækið Taktík sem sér hæfir sig í almannatengslum, stefnu mótun og markþjálfun fyrir ein staklinga, stofnanir og fyrir tæki. „Við sjáum mikla þörf á slíkri samþættri ráðgjöf,“ segir Margrét. „Þessar þrjár stoðir tala vel saman og má teljast nýjung að hægt sé að nálgast allt undir sama hatti. Samskipti eru lykil­ atriði í velgengni fyrirtækja, hvort sem er inn á við eða út á við.“ „Efling stjórnenda og starfs­ manna er ein arðbærasta fjár­ festing fyrirtækja í dag og miklu skiptir að hver og einn fái þann stuðning sem nýtist best,“ segir Aðalheiður. Aðalheiður starfar við breyt­ inga­ og straumlínustjórnun hjá Arionbanka. Auk átta ára reynslu af bankastarfsemi hefur hún meðal annars unnið sem samskiptastjóri og gæðastjóri. Margrét starfaði þar til í febrúar á þessu ári sem sérstakur ráðgjafi ráðherra í forsætisráðuneytinu og sem aðstoðarmaður utanríkis­ ráðherra. Þar áður vann hún við almannatengsl og markaðsstörf hjá Árnasonum auglýsingastofu. Aðalheiður útskrifaðist með MBA frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 auk þess að vera með BA­próf í heimspeki og próf í markþjálfun og einkaþjálfun. „Mér finnst einstaklega gaman að leysa úr ólíkum verkefnum og sjá nýjar hliðar á málum. Viðskiptafræðin, heimspekin og markþjálfunin hafa nýst mér vel við að takast á við fjölbreyttar áskoranir í starfi.“ Margrét er með diplómu í alm annatengslum og markaðs­ samskiptum frá Opna háskólan ­ um við Háskólann í Reykjavík og hefur einnig stundað nám í fjölmiðla­ og félagsfræði við Háskóla Íslands. Þar að auki er hún menntaður markþjálfi. „Þessi ágæta blanda hefur nýst mér vel í lífi og starfi og því er ánægjulegt að geta samþætt þessa þætti og boðið upp á slíka þjónustu undir einum og sama hatti.“ Hvað áhugamál þeirra varðar segir Aðalheiður að margt veki áhuga hennar svo sem að upp lifa nýja hluti með fjölskyldu og vinum. „Ég hreyfi mig auk þess reglulega og hef tamið mér það sem lífsstíl. Mér þykir einstaklega gaman að veiða á stöng og svo hef ég stundað blak síðustu ár með HK.“ Margrét er í hestamennskunni auk þess sem hún hefur gaman af fjallgöngum. „Svo á pólitíkin stóran part í mér.“ „Við sjáum mikla þörf á slíkri samþættri ráðgjöf,“ segir Margrét. „Þessar þrjár stoðir tala vel saman og má teljast nýjung að hægt sé að nálgast allt undir sama hatti. Samskipti eru lykil atriði í velgengni fyrirtækja, hvort sem er inn á við eða út á við.“ aðalHEiðuR SiguRSvEiNSdÓttiR og MaRgRét gÍSladÓttiR – eigendur Taktík texti: svava jónsdóttir / mynd: Geir ólafsson Aðalheiður Sigursveinsdóttir og Margrét Gísladóttir, eigendur Taktík. Nafn: Aðalheiður Sigursveinsdóttir. Starf: Sérfræðingur í straumlínu - stjórnun og stjórnenda mark þjálfi. Fæðingarstaður: Akureyri, 20. október 1973. Foreldrar: Sigursveinn Jóhannes- son og Edda Kristjánsdóttir. Maki: Páll Magnússon, bæjarritari Kópavogi. Börn: Magnús Már, 16 ára, og Pétur Arnar, 11 ára. Menntun: MBA, Háskólinn í Reykjavík. BA-próf í heimspeki, Háskóli Íslands. Markþjálfun, Háskólinn í Reykjavík. Einkaþjálfari.   Nafn: Margrét Gísladóttir. Starf: Almannatengill og stjórn- endamarkþjálfi. Fæðingarstaður: Skagafjörður, 19. júlí 1986. Foreldrar: Gísli Gunnarsson og Þuríður Kristjana Þorbergsdóttir. Maki: Teitur Björn Einarsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Menntun: Markþjálfun, Háskólinn í Reykjavík. Diplóma í almannatengl- sum og markaðssamskiptum, Opni Háskólinn við Háskólann í Reykja- vík. Menntun í fjölmiðla- og félags- fræði, Háskóli Íslands.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.