Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 16
16 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
ADVEL lögfræðiþjónusta veitir einstaklingum, fyrir-
tækjum og opinberum aðilum alhliða lögfræðiráðgjöf
á þremur starfssviðum: Fyrirtækjasviði, Alþjóðasviði
og Almennu sviði. Skrifstofur lögmannsstofunnar
eru að Suðurlandsbraut 18 í Reykjavík.
Eigendur ADVEL lögfræðiþjónustu eru Anton
Björn Markússon hrl., Guðmundur Siemsen hdl.,
Jón Ögmundsson hdl., Kristinn Hallgrímsson hrl.,
Óskar Norðmann hdl., Sigrún Helga Jóhannsdóttir
hdl., Stefán Þór Ingimarsson LL.M hdl. og Telma
Halldórsdóttir MA, hdl.
Fyrirrennari ADVEL er Lögfræðistofan Fulltingi
ehf. sem var stofnuð árið 2001. Sú lögfræðistofa óx
hratt og fyrir rúmum tveimur árum var starfseminni
skipt milli eigenda í tvö sjálfstæð fyrirtæki: Fulltingi
lögfræðiþjónustu og Fulltingi slysa- og skaðabóta-
mál. Guðmundur Siemsen segir nafnabreytinguna
undirstrika aðskilnað þessara tveggja lögmanns-
stofa. „Í kjölfar aðskilnaðar fyrirtækjanna á sínum
tíma báru þau bæði nafnið Fulltingi, sem er gott og
gilt íslenskt orð og lýsandi fyrir eiginlegt hlutverk
lögmanna í samfélaginu. Samstarf okkar hefur frá
upphafi verið farsælt en með aukinni sérhæfingu og
ólíkum áherslum í rekstri fyrirtækjanna þótti okkur
tímabært að skerpa skilin frekar á milli þeirra. Full-
tingi lögfræðiþjónusta fékk því nafnið ADVEL, en
alþjóðlegt yfirbragð þess speglar meðal annars aukna
áherslu okkar á þjónustu við viðskiptavini okkar á
alþjóðlegum vettvangi.
Meginstarfsemi okkar felst í þjónustu við fyrirtæki
og opinbera aðila, s.s. á sviði félagaréttar, samkeppn-
isréttar, vinnuréttar og stjórnsýsluréttar, svo dæmi
séu tekin. Þjónusta við einstaklinga hefur jafnframt
vaxið nokkuð, en þeir leita helst til okkar vegna mála
advelFramsækin og traust
lögfræðistofa sem veitir
alhliða sérfræðiþjónustu