Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 97
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 97
Íslenskur iðnaður
losun alcan á
Íslandi hf. árið 2008
ári, mæld í CO2-
ígildum, nam aðeins
23 kg á hvert fram-
leitt tonn af áli en
meðalálver losar um
700 kg.
alþjóðasamtök álframleiðenda (IAI) hafa staðfest að Alcan á Íslandi hf. náði bestum árangri í heimi árið
2008 við að lágmarka losun flúorkolefna.
Flúorkolefni eru sterkar gróðurhúsaloft-
tegundir og stór hluti af heildarlosun
margra álvera. Losun Alcan á Íslandi hf.
árið 2008 ári, mæld í CO2-ígildum, nam
aðeins 23 kg á hvert framleitt tonn af áli
en meðalálver losar um 700 kg. Með því
að skara fram úr á þessu sviði losar álverið
í Straumsvík 130 þúsund tonnum minna
af CO2-ígildum á ári en ef losun þess væri í
meðallagi.
Umræddar lofttegundir myndast þegar
svonefnt ris verður í kerum en meginor-
sakavaldur risa er of lítið magn súráls í keri.
Sá sem leiðir viðleitni Alcan á Íslandi hf. við
að draga úr risum, og þar með losun þessara
lofttegunda, er Gunnar Ari Guðmundsson,
leiðtogi tölvustýringar í rafgreiningu.
„Það eru margir samverkandi þættir sem
skýra þennan góða árangur,“ segir Gun-
nar Ari. „Til dæmis þróuðum við sjálfvirka
riseyðingu sem styttir risin með því að
keyra skautin neðar í kerin þegar ris byrjar
að myndast. Einnig er skynjunarbúnaður á
brjótunum sem brjóta súrálinu leið ofan í
kerin. Búnaðurinn skynjar hvenær brjótur
er kominn niður í raflausn, sem þýðir að
við getum látið hann ganga dýpra niður
en ella, sem aftur greiðir fyrir flæði súráls
niður í kerin. Fá álver hafa slíkan búnað,
sem á rætur að rekja til Alusuisse, en dæmi
eru um álver sem hafa tekið þetta upp eftir
okkur.“
Gunnar Ari nefnir ennfremur sjálfvirkt
kerfi, sem sendir starfsmönnum í kerskála
viðvörun í símboða þegar kertölvurnar
skynja að ris geti verið í aðsigi. „Starfsmenn
komast þar með fyrr á staðinn til að greina
vandamálið.“ Fleiri þýðingarmikil atriði
mætti nefna til sögunnar. Til dæmis er
staðreynd að kornastærð súráls hefur áhrif á
ris og svo vill til að fínt súrál kemur iðulega
fyrst upp úr skipunum við löndun. Þetta
vandamál var leyst með því að þróa aðferð
til að tryggja að þetta fína súrál væri alltaf
blandað grófara súráli.“
Eigi árangur að nást gildir að hafa þessi
mál til stöðugrar endurskoðunar, að sögn
Gunnars Ara. Það er til marks um metnað
hans og annarra sem að þessum málum
koma að árangurinn árið 2009 var enn betri
en árið 2008 en beðið er eftir úrskurði
Alþjóðasamtaka álframleiðenda um hvaða
fyrirtæki náði bestum árangri það ár.
Heimsmet í að lágmarka losun flúorkolefna
alcan á íSlandi
Gunnar Ari Guðmundsson er í fremstu víglínu í baráttunni við ris, sem valda losun gróð-
urhúsalofttegunda.
Eitt af meginmarkmiðum Alcan á Íslandi hf.
er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.