Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 85
Íslenskur iðnaður
tæki sem sjá áliðnaðinum á Íslandi fyrir
vörum og þjónustu hafa orðið til. Mikil
nýsköpun í íslenskum orkuiðnaði hefur
einnig tengst stóriðjuframkvæmdum. Ég
tók þátt í góðum ársfundi Nýsköpunarmið-
stöðvar á dögunum þar sem m.a. var kynnt
hugmynd að framleiðslu á háhitaeinangrun
og kerfóðrunarefni fyrir rafgreiningarker
í áliðnaði. Við þessa framleiðslu yrði m.a.
mögulegt að nota kísilryk sem fellur til sem
aukaafurð við vinnslu járnblendis. Þetta er
enn ein áhugaverð hugmynd sem sprottin
er af þörf áliðnaðarins.“
Verkferli í stöðugri þróun
„Alcoa Fjarðaál er eitt af tæknilega full-
komnustu álverum heims í dag og hjá
okkur starfa um 90 háskólamenntaðir
starfsmenn. Við vinnum mikið þróun-
arstarf sem tengist framleiðsluferlum og
tækninýjungum í álframleiðslu. Ferlamódel
Fjarðaáls er í stöðugri þróun og Fjarðaál
er jafnframt framarlega í notkun aðferða
sem byggja á straumlínustjórnun (e. lean
manufacturing). Nýlega náði Fjarðaál þeim
áfanga að fá svokallaðan „Best practice“
stimpil í skautskiptum í kerskála og er
aðferð Fjarðaáls nú viðmið innan Alcoa,
sem m.a. rekur 20 álver víða um heim. Frá-
bær árangur og sannarlega nýsköpun þar
sem tækniteymi og starfsfólk framleiðslu
hefur unnið mikið þróunarstarf.“
Um vörur Fjarðaáls segir Magnús að
fyrirtækið framleiði álvír, málmblendis-
stangir, álbarra og álhleifa. „Mikill virð-
isauki er fólginn í framleiðslu álvírs og
stanga og er stöðugt verið að auka fram-
leiðslu þessara vara. Fyrirtækið skipar dag-
lega út vörum fyrir yfir 200 milljónir króna
og á álverssvæðinu eru að jafnaði 700 til
800 manns að störfum. Hjá Alcoa Fjarða-
áli starfa um 480 starfsmenn en auk þess
hafa um 300 verktakar daglega atvinnu við
álverið. Það er stefna fyrirtækisins að kaupa
þjónustu af aðilum í nærsamfélaginu og
því er stórum hluta starfseminnar úthýst,
þótt vinnan fari fram innan veggja álversins
og samkvæmt verkferlum Fjarðaáls,“ segir
Magnús að lokum.
„nýsköpun snýst um að
búa til eitthvað nýtt eða
endurbæta það sem fyrir
er og getur átt við um
vörur, þjónustu, skipulag,
tækni, framleiðsluaðferðir
o.fl. Mörg sprotafyrirtæki
sem sjá áliðnaðinum á
Íslandi fyrir vörum og þjón-
ustu hafa orðið til. Mikil
nýsköpun í íslenskum orku-
iðnaði hefur einnig tengst
stóriðjuframkvæmdum.“
Vélmenni raðar málmblendisstöngum í stæður.
Lesið á merkingar álbarra. Álvírar í steypuskála.