Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
Hrói
HöTTur
H
ræddur er ég um að mörgum finnist það vera að bera í bakka-
fullan lækinn að koma með enn eina kvikmyndina um Hróa
hött. Ridley Scott er greinilega ekki á sama máli þar sem hann
hefur haft mörg tækifæri til að hætta við sína útgáfu af Hróa
hetti en haldið sínu striki. Nú er svo komið að dýrasta kvikmyndin
um Hróa hött lítur dagsins ljós um miðjan maí en þá verður hún
frumsýnd í fjölmörgum löndum, meðal annars hér á landi. Kvik-
myndin heitir einfaldlega Hrói höttur (Robin Hood).
Upprunalega nafnið átti að vera Nottingham, síðan var því breytt
í Sheriff of Nottingham áður en Hrói höttur varð fyrir valinu. Ástæðan
fyrir þessum nafnabreytingum er að Scott hafði áhuga á að fá Russell
Crowe til að leika erkióvin Hróa hattar, fógetann í Nottingham, eftir
handriti sem var tilbúið 2007. Crowe var svo sem alveg sáttur við að
leika fógetann, en líkaði samt illa við handritið og vildi breytingar,
sem voru gerðar og nafninu breytt. Enn var Crowe óánægður og það
varð úr í lok árs 2008 að skrifað var nýtt handrit þar sem hlutur fóg-
etans var minnkaður og í staðinn lögð áhersla á atburði sem verða
til þess að Sir Robin of Loxley, Earl of Huntington, verður útlaginn
Hrói höttur og Crowe var fenginn í hlutverk Hróa hattar.
Fimm kvikmynda samstarf
Sagan af Hróa hetti hefur tekið miklum
breytingum í gegnum tíðina enda um
þjóðsögu að ræða þar sem lítið er vitað
um aðalpersónuna og öllum heimilt að
túlka á sinn hátt. Það sem hefur gert
þjóðsöguna trúverðuga er að þekktum
sögupersónum, kóngum og lávörðum
er iðulega bætt inn í söguþráðinn, sem
og atburðum sem áttu sér stað í mann-
kynssögunni og svo er einnig í útgáfu
Ridley Scotts. Í upphafi er Sir Robin
á leið heim úr krossferð til Austurlanda. Hann kemst fljótt að því
að hinn illræmdi fógeti í Nottingham hefur hirt allar eigur hans og
hneppt íbúa þorpsins, sem yfirráð hans náðu yfir, í ánauð. Fógetinn
er með mikinn herstyrk á bak við sig og það er því ekki um annað að
ræða fyrir Sir Robin en að safna saman tryggum stuðningsmönnum
og leggjast í útlegð í Skírisskógi með það að markmiði að fella fóg-
etann af valdastóli. Einnig leggur hann mikið á sig til að vinna ástir
ekkjunnar Lady Marian.
Hrói höttur er fimmta kvikmyndin sem Russell Crowe leikur
í undir stjórn Ridleys Scott. Samstarf þeirra hófst með Gladiator
(2000), A Good Year (2006) var næst,
síðan komu American Gangster (2007)
og Body of Lies (2008). Þegar Crowe
hafði loks samþykkt handritið gaf
hann allt í hlutverkið og meðal annars
æfði hann sig með boga og örvar og
gat í lok æfingatímans hitt í mark af
45 metra færi.
Aðrir leikarar í Hróa hetti eru
Cate Blanchett, sem leikur Marian,
Matthew Macfadyen leikur fógetann
í Nottingham. Danny Huston leikur
Ríkharð ljónshjarta, Mark Addy
Kvik myndir
tEXti:
HILMAR KARLSSON
ridley scott er ekki hrifinn af eldri kvik-
myndum um útlagann í skírisskógi. Hann
leikstýrir russell Crowe í dýrustu kvikmynd
um Hróa hött sem gerð hefur verið
Russell Crowe í hlutverki Hróa hattar. Hann var í marga mánuði að
læra að skjóta af boga og gat að námi loknu skotið í mark af 45
metra færi.
Ridley Scott ræðir við Russell Crowe og Cate Blanchett
meðan tökur á Hróa hetti fóru fram.