Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 87
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 87
Íslenskur iðnaður
Helgi Magnússon,
formaður Samtaka
iðnaðarins.
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, hóf ræðu sína á
þeim orðum að brýnasta verkefnið á Íslandi næstu tíu árin væri að
skapa 35.000 ný störf. Það þurfi að gerast hratt og örugglega því
annars muni ekki takast að reisa við íslenskt efnahags- og þjóð-
líf. Samtök iðnaðarins hafa trú á því að þetta sé mögulegt og að
íslenskur iðnaður muni gegna lykilhlutverki:
„Til þess að það geti gengið eftir þarf margt að breytast í
umhverfi okkar. Ekki síst það að nú verði almennt farið að taka
réttar ákvarðanir í stað allra þeirra röngu sem hafa verið teknar
á undanförnum misserum,“ sagði Helgi og vísaði til núverandi
stjórnvalda.
Helgi sagði einnig að þjóðin hefði bæði vilja og getu til vaxtar:
„Við getum endurreist íslenskt atvinnulíf á fáeinum árum og eytt
atvinnuleysinu ef almennur skilningur fæst á því að sú endurreisn á
sér ekki stað nema með viðvarandi hagvexti. Við viljum hagvöxt.“ Í
kjölfarið nefndi formaðurinn að ástæða þess að svo illa gengi að end-
urreisa efnahag Íslendinga væri einkum sú að hér séu áhrifamikil öfl
sem virðast vera á móti hagvexti og beiti afli sínu gegn endurreisn
atvinnulífsins. Unnt sé hins vegar að endurreisa efnahag landsins
býsna hratt ef nægur stuðningur ráðandi afla fáist við skynsamlega
hagvaxtarstefnu sem hrint yrði í framkvæmd hið fyrsta, án þess að
farið væri á svig við eðlilega náttúruverndarstefnu.
Áður en endurreisn efnahagslífsins getur átt sér stað – þarf end-
urreisn hugarfarsins meðal Íslendinga, að mati Helga. En það er ekki
einfalt eða auðvelt verkefni. Engu að síður óhjákvæmilegt ef ekki á
illa að fara. Áherslu þurfi að leggja á skjóta og skynsamlega nýting
orkuauðlindanna, auk allra þeirra tækifæra sem unnt sé að nýta með
markvissum hætti, það muni ráða úrslitum um endurreisn efnahags-
lífs Íslendinga.
Helgi telur tækifærin vera mörg og þau liggi á ýmsum sviðum
en við núverandi ástand sé margháttaður seinagangur grátlegur. Það
verði að ryðja hindrunum markvisst úr vegi og hraða framvindu
mála. Ef ekki takist að hraða mjög endurreisn atvinnulífsins og
tryggja aukna verðmætasköpun með stöðugum hagvexti, þá missi
Íslendingar grundvöllinn undan því öfluga velferðar- og menntakerfi
sem allir eru sammála um að sé lykill að eftirsóknarverðu þjóðlífi.
Samtök iðnaðarins hafa eindregið hvatt til þess að leið verðmæta-
sköpunar sé rétta leiðin út úr efnahagsvanda Íslendinga og eru mót-
fallin skattahækkunarleiðinni. Verulegar skattahækkanir eins og nú
hefur verið gripið til dýpki kreppuna. Fjárhagsvandi ríkissjóðs og
sveitarfélaga er að sjálfsögðu ljós en SI telja að leysa eigi fjárhags-
vanda þeirra með því að breikka skattstofnana með aukinni atvinnu
og öflugrar hvatningar til fjárfestinga í atvinnulífinu.
Formaðurinn benti á að Íslendingar hafi á hendi tvo bestu kost-
ina í orkuheiminum; jarðhita og vatnsafl, sem eru hreinir, end-
urnýjanlegir og fremur ódýrir kostir í sterkri samkeppnisstöðu við
umdeilda olíu, gas og kjarnorku, ekki hvað síst út frá umhverf-
issjónarmiðum. Að auki höfum við góða samkeppnisstöðu gagnvart
öðrum hreinum orkukostum, sem eru dýrari og óáreiðanlegri en
jarðhiti og vatnsafl.
Okkur ber skylda til að nýta orkuauðlindir þjóðarinnar af skyn-
semi og yfirvegun þar sem þess er gætt að langtímahagsmunum sé
ekki fórnað fyrir skemmri tíma hagsmuni og við verðum að tryggja
að næg orka sé til reiðu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, smáa og
stóra, jafnt í iðnaði sem öðrum atvinnugreinum.
Helgi leggur áherslu á að gengið sé fumlaust til verka: „Stórátak
á sviði orkunýtingar er lykillinn að endurreisn Íslands. Miklir erf-
iðleikar hafa verið varðandi fjármögnun íslensku orkufyrirtækjanna
eftir að kreppan skall á. Vonandi rofar sem fyrst til í þessum efnum
en mér finnst fyllilega koma til greina að lífeyrissjóðir landsmanna
komi myndarlega að fjármögnunarverkefnum á þessu sviði. Því
ekki? Lífeyrissjóðirnir eru öflugir og þá skortir fjárfestingartækifæri
nú um stundir.“
Vilji til vaxtar
– mótum eigin framtíð
iðnþing 2010
Helgi Magnússon, formaður samtaka iðnaðarins
Stórátak á sviði orkunýtingar