Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 15
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 15
fyrst þetta ...
„Félagsmenn í Félagi atvinnurekenda eru
mjög uggandi vegna þessa máls. Við teljum
að ríkisstjórnin hafi lofað að standa vörð um
samkeppni og því eðlilegast að fyrirtæki
í eigu bankanna séu seld í opnu og gagn-
sæju ferli og tryggt sé með lögum að
hlutverk bankanna sé að lána íslensku
atvinnulífi en ekki reka það. Reynslan af
hinu síðarnefnda er slæm. Dæmi um þetta
er til dæmis að í dag eru nánast öll stærstu
bílaumboðin í eigu bankanna og slíkt getur
ekki talist eðlilegt,“ segir Almar.
of almennt orðalag
„Það eru margir ágætir punktar í frumvarp-
inu en okkur sýnist þó að lykilmál eins og
eignarhald banka á atvinnufyrirtækjum hafi
gleymst og frumvarpið felur ekki í sér neinar
breytingar hvað það varðar frá því sem nú
er. Félag atvinnurekenda gagnrýnir því nýtt
frumvarp viðskiptaráðherra og telur að
verði það að lögum fái bankarnir frítt spil á
næstu árum. Frumvarpið tekur til breytinga
á lögum um fjármálafyrirtæki og hefur það
verið í smíðum í viðskiptaráðuneytinu í tæpt
ár. Í áliti sem Félag atvinnurekenda hefur
skilað til viðskiptanefndar Alþingis er gagn-
rýnt að í frumvarpinu sé fátt sem takmarki
hversu lengi bankarnir geti átt fyrirtæki í
atvinnurekstri eða hvenær þau skuli seld.
Við teljum nauðsynlegt að skerpa á þessu
atriði í lögunum því frelsi bankanna til að
eiga og reka fyrirtæki er of rúmt. Orðalagið
er þannig að bankar hafa undanþáguheim-
ildir til að eiga eignarhlut tímabundið en
ekki skýrt nánar hvað tímabundið þýðir eða
nær yfir langan tíma.
Að okkar mati er nauðsynlegt að setja
bönkunum mun þrengri ramma um inngrip í
samkeppnismarkaði. Í verklagsreglum fjár-
málafyrirtækja er sagt að stefna skuli að því
að selja eignarhluti í fyrirtækjum eins fljótt
og hagkvæmt er. Þetta orðalag er ekki full-
nægjandi og óeðlilegt er að hagkvæmnisjón-
armið banka séu sett ofar öðrum sjón-
armiðum. Almannahagsmunir hljóta að þurfa
að koma þarna til álita með skýrum reglum
sem sett eru af stjórnvöldum. Samkeppnis-
eftirlitið hefur í auknum mæli sett bönkum
takmarkanir vegna eignarhalds í fyrirtækjum
og nauðsynlegt er að Samkeppniseftirlitið fái
auknar heimildir til að fylgja slíkum málum
eftir,“ segir Almar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Félags atvinnurekenda að
lokum.
Nýtt frumvarp viðskiptaráðherra um lög um fjármálafyrirtæki
setur bönkum ekki nægilega skýr skilyrði varðandi eignarhald
fyrirtækja, segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Bankarnir ógna samkeppni
Tryggja verður samkeppnisjónarmið
með skýrari hætti í lögum – það verður
að vera óumdeilt að bankar stuðli ekki
að óheilbrigðum viðskiptaháttum í
gegnum eignarhald.
Löggjafanum ber að setja skýrar
línur varðandi hvað hann telur
„tímabundna“ eign banka í atvinnu-
fyrirtækjum – það á ekki að vera túlk-
unaratriði bankanna sjálfra.
Heilu atvinnugreinarnar mótast
nú af því að þar eru fyrirtæki í eigu
banka og skilanefnda í samkeppni við
einkaaðila og í innbyrðis samkeppni.
Það skapar viðvarandi óvissu og bjagar
eðlilega samkeppni. Nefna má bíla-
markaðinn og markað með ritföng sem
dæmi um þetta. Því miður eru dæmin
mun fleiri.
Veita þarf Samkeppniseftirlitinu
auknar heimildir – og fjármálafyrir-
tækjum aukið aðhald. Æskilegt er að
frumvarpið breytist í meðförum þings-
ins.
Það sparast pláss og tími
með lausnum frá Rými
- fyrir alla muni!
Frábærar lausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki - Ráðgjöf
- Lausnir
- Þjónusta
Skemmuvegur 6
Kópavogur
Sími 511-1100
www.rymi.is
- Skjalaskápar
- Teikningaskápar
- Geymsluhillur
- Starfsmannaskápar
- Lagerhillur
- Verslunarhillur
TExTI: vilmundur Hansen • MYND: Geir ólafsson
Almar Guðmundsson.