Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 45
s t j ó r n m á l
urinn sem ekki fylgir allur sömu stefnu og Bjarni reynir að
fara bil beggja.“
sigmundur orðljótur
Staða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Fram-
sóknarflokksins, er líka sérstök. Stefanía bendir á að stefna
hans í málum eins og Icesave og niðurfellingu skulda sé í
raun að ná fram þótt allir séu á móti honum.
„Hann er búinn að prédika niðurfellingu skulda í meira
ár en fær ekkert kredit fyrir það núna þegar stjórnin virðist
ætla að fara svipaða leið,“ segir Stefanía.
Eiríkur segir að Sigmundur sé alltof harkalegur í
sínum málflutningi, of reiður og oft orðljótur í garð and-
stæðinganna.
„Ég tek líka eftir þögn sumra þingmanna Fram-
sóknarflokksins þegar Sigmundur og hans fólk fer hvað
mest. Ég held ekki að tilviljun ráði því að til dæmis
Guðmundur Steingrímsson lætur lítið til sín taka,“ segir
Eiríkur og nefnir einnig Siv Friðleifsdóttur og Birki Jón
Jónsson.
einangrun eða opin gátt
Samfylkingarfólk er illa búið undir kosningar. Flokkurinn
tapar mestu fylgi samkvæmt skoðanakönnunum, óþol
innan flokks vegna pattstöðunnar er áberandi og ný for-
ysta ekki í sjónmáli.
Vinstri græn eiga líka erfitt með að ganga sameinuð
til kosninga. Það eru sjáanleg skil milli gamla Alþýðu-
bandalagsins og „órólegu deildarinnar“ með Ögmund og
Liljurnar í uppreisnarhug.
Það eru líka komin fram ný skil í íslenskum stjórn-
málum og þau ganga þvert á alla flokka nema helst
Samfylkingu. Þetta eru annars vegar þeir sem vilja að
Íslendingar berjist áfram án þess að hafa umtalaða sátt
við fjármálakerfi heimsins, neiti helst ábyrgð á Icesave og
haldi sig fjarri Evrópusambandinu.
Hins vegar eru þeir sem telja að Íslendingar geti ekki
róið einir án þess að það komi enn frekar niður á lífskjörum
í landinu.
Þessi tvö viðhorf má kenna við einangrun eða opna
gátt.
Stefanía segir að þessi skil séu mest áberandi í Sjálf-
stæðisflokknum, til dæmis eftir stofnun félags ESB-sinna
meðal flokksmanna. „Það er ekki sjálfgefið að Sjálfstæðis-
flokkurinn lifi átökin um stefnuna af í heilu lagi,“ segir
Stefanía.
CCP stjórnar heilu hagkerfi
sem nær yfir mörg sólkerfi.
Við erum bankinn þeirra.
Lárus Sigurðsson, útibússtjóri Borgartúni
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir