Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 42
42 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
s t j ó r n m á l
Heimsbylting frá hægri og vinstri
Og ekki markaði niðurstaða atkvæðagreiðslunnar upp-
hafið að sigri íslenskrar alþýðu yfir heimsauðvaldinu. Fyrir
kjördag var talað um að láta „hávært nei-ið“ hljóma út yfir
heimsbyggðina og skjóta auðmagninu skelk í bringu. Bjarni
Harðarson, hinn litríki bóksali og
fyrrum framsóknarþingmaður,
fór svofelldum orðum um tang-
arsókn Íslendinga gegn kvölurum
sínum í Morgunblaðsgrein 11.
mars:
„Fyrir kosningar mátti ætla að
einhverjir hér tryðu því í raun og
veru að Sjálfstæðisflokkurinn á
Íslandi, óvart undir forystu Ólafs
Ragnars Grímssonar, myndi nú
á gamalsaldri beggja stýra einhverskonar heimsbyltingu
alþýðunnar gegn fjármagnseigendum.“
línur skýrari?
Þarna er þó að fleiru að gæta. Í Danmörku, Svíþjóð, Finn-
landi og Hollandi er afstaða stjórnvalda gegn Íslandi harð-
ari en áður. Norska ríkisstjórnin hefur aftur á móti hallast
meir á sveif með Íslendingum og landsmenn hafa aflað sér
nokkurrar virðingar meðal hópa vinstrimanna í Evrópu.
Það þykir flott að landsmenn í máttleysi sínu réttu þó
heimsauðvaldinu fingurinn. Þjóðaratkvæðið vakti athygli
þótt ekki markaði það upphaf byltingar.
Og róttækir vinstrimenn ráða þó hvergi ríkjum í Evr-
ópu. Stefanía Óskarsdóttir bendir á þessa sérstæðu sam-
stöðu milli vinstri hreyfinga og hægrimanna á Íslandi.
„Andstæðingar Icesave-laganna hitta fyrst og fremst
fyrir vini og samherja í hópi þeirra sem vilja kapítalismann
feigan. Þetta er nýtt bandalag fyrir Sjálfstæðismenn. Mogg-
inn í liði með sósíalistum,“ segir Stefanía.
Og enn veit enginn til hvers synjun forsetans leiðir.
„Hann tók þarna áhættu sem getur brugðið til beggja vona
bæði fyrir hann og þjóðina,“ segir Stefanía.
Beðið eftir Godot
Allir þeir sem Frjáls verslun hefur rætt við segja að nú sé
beðið. En það er eins og í leikriti Becketts, Beðið eftir
Godot, að enginn veit eftir hverju er verið að bíða. Hugs-
anlega eru einhver þau tíðindi í rannsóknarskýrslunni
langþráðu sem brjóta upp pattstöðuna. Eða verða sveit-
arstjórnarkosningarnar í vor til þess að nýtt fólk með nýjar
hugmyndir kemst í fremstu víglínu?
Núna er staðan sú að ríkisstjórnin hefur ekki þann
meirihluta sem þarf til að koma efnahagsstefnu sinni
fram. Kjarni hennar er lausn Icesave-deilunnar og fram-
hald samstarfs við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta er allt
strand.
En það er ekki heldur meirihluti á móti stjórninni.
Stjórnarandstaðan hvorki getur né vill fella stjórnina.
Andstaðan hefur ekki meirihluta á þingi. Hún vill ekki
heldur skapa óvissu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga
„andstæðingar icesave-
laganna hitta fyrst og
fremst fyrir vini og
samherja í hópi þeirra sem
vilja kapítalismann feigan.“
Stefanía Óskarsdóttir.
Stefanía Óskarsdóttir. Eiríkur Bergmann Eiríksson.