Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
í m a r k 2 0 1 0
vöru- og firmamerki – metro
McDonalds á Íslandi hætti og veitingastaðirnir sem hýstu McDonalds
fengu nýtt nafn, Metro. Örn Smári Gíslason, grafískur hönnuður, fékk
það verkefni að hanna nýtt lógó fyrir matsölustaðina. „Eftir að hafa
skoðað mikið af skyndibitamerkjum vildi ég fara frá þeirri hönnun sem
er ríkjandi á markaðnum og skapa merki sem bæri með sér nýjan,
ferskan svip og stæði út úr flórunni. En að sama skapi yrði merkið
að vera lýsandi fyrir starfsemina. Ég leit m.a. til skilta og plakata sem
hönnuð hafa verið fyrir neðanjarðarlestarkerfið í New york, svo og
nýrrar evrópskar hönnunar í leitinni að áhrifum. Eftir mikla skissuvinnu
og tilraunir kviknaði hugmyndin að því að sýna helstu söluvöru Metro,
hamborgarann. til þess að sú hugmynd gengi upp þurfti að tálga allt
í burtu sem myndi flækja merkið og gera það að myndskreytingu en
skilja hamborgarann eftir í sinni einföldustu mynd en þó einstakan. Eftir
að hafa fundið rétta letrið og unnið sérstaklega í „t“ og „r“ komst jafn-
vægi á orðið metro og það gekk vel upp með hamborgaranum. Merkið
fékk strax jákvæð viðbrögð og skemmtilegast þótti mér að heyra að ein-
hverjir héldu að um erlenda keðju væri að ræða.“
auglýsingaherferðir
– essasú?
Auglýsingaherferð Vodafone með „Essasú“
froskinum var valin besta auglýsinga-
herferðin. Auk þess var herferðin einnig
val fólksins og fékk því Fíton, sem hann-
aði herferðina, tvenn eftirsóttustu auglýs-
ingaverðlaunin. Baldvina Snælaugsdóttir
hjá Vodafone segir hugmyndina að frosk-
inum hafa kviknað í kringum vinnu við gerð
auglýsingu fyrir fartölvutilboð Vodafone sl
haust. „Áherslan í auglýsingunum átti að
vera á smæð tölvunnar, þá kom barnamálið
inn í hugmyndavinnuna; hver er svona
lítil og sæt? Í meðförum Péturs Jóhanns
Sigfússonar leikara, sem ljáði froskinum
rödd sína, varð til frasinn „Essasú?“ þegar
hann gældi við tölvuna. Framhaldið þekkja
flestir, Essasú-frasinn heltók þjóðina og
froskurinn var í aðalhlutverki í herferðum
Íslensku auglýsinga-
verðlaunin
út árið 2009, Vodafone Gull herferð og
jólaherferð. Krúttlegi froskurinn knúsaði
þjóðina og kannski má segja að það hafi
verið lykillinn að gríðarlegri velgengni her-
ferðanna – þjóðin þurfti svo sannarlega
á einlægu knúsi að halda.“