Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 21
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 21
Á ég að taka nýja stefnu í lífinu? Á ég að
skipta um vinnu? Á ég að leita á ný mið um
viðskiptasambönd? Oft er erfitt að stíga
þetta skref og oft er helsta afsökunin þessi:
Ég er svo illa tengdur. Ég þekki engan. Ég
kann ekkert á þetta tenglatog.
En vissulega er það svo að margir, sem
hafa náð langt og ætla sér lengra, eru lagnir
við að rækta sambönd sín. Í Ameríku kalla
menn það „networking“ þegar þeir sækja
samkvæmi. Það er ef til vill kaldhæðnisleg
orðanotkun en sönn. Í samkvæmum treystir
fólk sambönd sín og myndar ný.
Þar vestra þykir sjálfsagt að nota sér sam-
bönd sín sér til frama. Í okkar heimshluta eru
menn varkárari við að toga í tenglana sína.
Skammast sín hálfpartinn fyrir að vera vel
tengdir en nýta sér það engu að síður.
Og það er hægt að misstíga sig við þetta
tenglatog, flækjast í eigið net af tenglum í
samfélaginu. Bandaríska tímaritið Harvard
Business Review hefur búið til lista yfir fimm
verstu villurnar, sem ber að varast:
Þú heldur að þú þekkir engan. Reyndu
þá að gera lista yfir það fólk sem þú þekkir
og er áhrifafólk. Með hverjum varstu í skóla?
Hvar eru þau nú? Með hverjum hefurðu
unnið? Listinn verður lengri en þú heldur.
Meðalmaðurinn á Fésbókinni á 130 vini.
Hikaðu ekki við að búa til lista yfir þá sem
þú þekkir.
Ég veit ekki hvernig ég á að hafa sam-
band. Það getur verið erfitt að taka fyrsta
skrefið. Kann að virka sem framhleypni og
ósk um að nýta sambönd sem þú hefur
ekki ræktað lengi. Mikið óráð er að hringja
og segja: Getur þú útvegað mér þessa eða
hina stöðuna! Betra er að leita ráða. Spyrja
gamlan vinnufélaga eða skólafélaga hvaða
ráð hann eða hún hafi að gefa. Þá hefur þú
komið áhuga þínum á framfæri án þess að
hafa misnotað sambandið.
Ég vil ekki selja sjálfan mig. Mörgum
finnst sem þeir séu að selja sig þegar þeir
hyggjast nýta tengla sína á frambrautinni.
Þarna ber að varast að hæla sjálfum sér og
segjast búa yfir ýmsum góðum eiginleikum.
Þess í stað er gott að undirbúa frásagnir af
verkum sem þú hefur unnið og segjast vera
stoltur af að hafa leyst tiltekið verkefni.
Ég kann ekki að blanda geði við fólk.
Þetta er mikilvægt. Ef þú ert á ráðstefnu eða
í samkvæmi er mikilvægt að tala við fólk. Þú
mátt ekki halda þig til hlés. En þú þarft ekki
að tala lengi við hvern. Allir aðrir á samkom-
unni ætla líka að eiga orðastað við marga.
Og ekki gleyma að ljúka samtalinu með því
að afhenda nafnspjald þitt.
Ekki tala illa um þinn fyrri vinnuveitanda.
Mesta hættan er að þú virkir bitur og nei-
kvæður ef þú gefur í skyn að þér hafi liðið
illa undir stjórn síðasta yfirmanns. Og að
auki er hætta á að væntanlegur vinnuveit-
andi þekki þann sem þú hafðir áður. Vertu
jákvæður og hrósaðu gamla sjeffanum, jafn-
vel þótt þú hatir hann í raun og veru.
s t j ó r n u n a r m o l i
tExti: gísli kristjánsson
Á ég að taka nýja stefnu í lífinu?
Már Guðmundsson:
afnám hafta komi á undan vaxtalækkunum
Í Morgunblaðinu 9. mars sl. var frétt um að Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri segði að hann legði meiri áherslu
á afnám gjaldeyrishafta en lækkun stýrivaxta. Reuters-
fréttastofan hafði þetta eftir Má þar sem hann sat á ráðstefnu
Alþjóðagreiðslubankans í Basel í Sviss.
Reuters hafði ennfremur eftir seðlabankastjóranum að
hann teldi líklegt að íslensk stjórnvöld ljúki við samninga við
bresk og hollensk stjórnvöld um Icesave-skuldbindingarnar
á næstu vikum.
Þá sagði Már við Dow Jones fréttaveituna að hann teldi
hverfandi líkur á því að íslensk stjórnvöld muni ekki geta staðið
við stóra gjalddaga sem falla veturinn 2011 til 2012.
Már Guðmundsson
seðlabankastjóri.
tENGSLANEt: