Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 43
F R J Á L S V E R S L U N • 2 T B L . 2 0 1 0 43
s t j ó r n m á l
og ekki leggja út í pólitísk ævintýri meðan skýrslan fræga
er ókomin.
Æ fleiri efast um að skýrslan muni hafa mikil pólitísk
áhrif. Allt sem sagt er um efni hennar er þó byggt á ágisk-
unum. Aðeins er vitað að skýrslan tekur ekki á sókn útrás-
arvíkinganna heldur aðeins viðbrögðum stjórnsýslunnar.
Viðbrögðin gætu því helst orðið við því sem ekki stendur í
skýrslunni. Rannsókn hrunsins er vart hafin.
Baráttan um borgina
Annað mál er með sveitarstjórnarkosningarnar og þá sér-
staklega niðurstöðuna í Reykjavík. Baráttan hefur verið
fremur daufleg í fyrstu, prófkjör án verulegra átaka ef frá
eru talin Vinstri græn.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri er óumdeildur
foringi sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún er ekki umdeild
sem borgarstjóri og þykir hafa góð tök á sínu starfi og hlut-
verki, án þess að standa í stríði við minnihlutann.
Stefanía Óskarsdóttir bendir á að þetta séu eiginleikar
sem margir almennir kjósendur Sjálfstæðisflokksins meti
mest.
„Þetta er hin gamla ímynd flokksins: Örugg, átakalaus
og heiðarleg stjórn,“ segir Stefanía. „Þessi ímynd beið alvar-
legan hnekki í hruninu og raunar líka í þeim upphlaupum
sem urðu í borgastjórn við upphaf kjörtímabilsins. Nú
reynir á hvort Hanna Birna nær að draga að fylgið sem fór
í þingkosningunum í fyrra.“
Þó er ljóst að enginn fer með afgerandi sigur af hólmi
í Reykjavík. Enginn spáir Sjálfstæðismönnum hreinum
meirihluta, Framsóknarflokkurinn gæti hæglega misst sinn
mann og meirihlutinn fallið. Þá er nýr meirihluti rík-
isstjórnarflokkanna líklegastur.
áfall að tapa borginni
Eiríkur Bergmann bendir á að tapi Hanna Birna borginni
verði það í sjálfu sér áfall, sama hvort hún hljóti góða kosn-
ingu. Völdin væru töpuð og möguleiki Hönnu Birnu á að
sýna forystuhæfileika sína glataðist.
Eiríkur telur óvissu einnig mikla innan Samfylking-
arinnar. Dagur B. Eggertsson og jafnvel Árni Páll Árnason
hafa verið taldir mögulegir arftakar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur. Nái Dagur ekki að komast í borgarstjórastólinn
verður staða hans þó veikari fyrir vikið, að mati Eiríks.
Hann verður fyrst að sýna hæfileika sína við stjórn borg-
arinnar, eða hugsanlega á þingi, áður en hann verður
leiðtogi. Það er því enginn augljós arftaki Jóhönnu Sigurð-
ardóttur kominn fram á sjónarsviðið.
Eiríkur sér þannig ekki að komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar valdi sérstökum tímamótum eða rjúfi pattstöðuna á
stjórnarheimilinu.
endurnýjuð stjórn með Ögmundi
Stefanía segir að stjórnarliðar gætu að sjálfsögðu brotið upp
stöðuna sjálfir: Samið um Icesave-skuldina á þeim nótum
sem rætt var um fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna, án atbeina
„Það eru dagarnir frá því
lögin eru samþykkt og til
5. janúar, þegar foretinn
synjar staðfestingar, sem
ráða úrslitum um þessa
stöðu sem nú er.“
Eiríkur Bergmann Eiríkssson.
„Það eina sem fæst út úr
þjóðaratkvæðagreiðslunni
er staðfesting á að landið
er stjórnlaust.“
Þorsteinn Pálsson.
Þorsteinn Pálsson.