Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0
SkilVirkni Í rekStri
Rekstrarstjórnun er álitin eitt skæðasta vopn Vesturlanda í sam-
keppninni við „the China factor“ sem kemur fram í lágum verðum
og fjöldaframleiðslu hjá hagkerfunum í Asíu. Með markvissu
skipulagi flutninga, framleiðslu og birgðahalds sækja framsækin
fyrirtæki í auknum mæli samkeppnisforskot gegnum rekstrar-,
gæða- og vörustjórnun. Með markvissum hætti beita þau hugviti
til að ná árangri í eftirfarandi þáttum:
Bæta framleiðsluferla og draga úr flöskuhálsum •
Skipuleggja flutningaferla og dreifingarkerfi•
Hraða flæði vörunnar og minnka birgðir •
Lækka fjárbindingu og framleiðslukostnað•
Vel skipulagt vöruflæði er mikilvægt samkeppnistæki hjá fjöl-
mörgum fyrirtækjum og skapar þeim sérstöðu á markaði. Sem
dæmi um fyrirtæki sem skara fram úr á þessum sviðum má
nefna WalMart, Dell, IKEA, ALDI, Nike, SevenEleven Japan og
Toyota.
Hérlendis hafa nokkur fyrirtæki skarað fram úr á þessu sviði og
hafa náð athyglisverðum árangri í rekstrarstjórnun sem hefur leitt
til hærra þjónustustigs og lægri heildarkostnaðar. Þau hafa ráðið
til sín færustu sérfræðinga á þessu sviði og náð athyglisverðum
árangri.
Þegar bæta á rekstrarstjórnun í fyrirtækjum er áhersla oft lögð
á lægri vörustjórnunarkostnað, minni fjárbindingu í vörubirgðum,
aukinn veltuhraða birgða og aukna þjónustu í virðiskeðju fyrirtæk-
isins sem tengist vöruflæði (innkaupum – birgðahaldi – sölu), ABC
greiningu á allri vöruflóru fyrirtækisins miðað við veltu, framlegð
og aldursgreiningu. Einnig eru allir vinnuferlar greindir og skráðir
sé þess þörf. Skipulag (“layout”) lagersins er skoðað, skráningarferli
vöru, afköst og flöskuhálsar greindir og gerðar tillögur sem geta
leitt til betri nýtingar, lækkunar kostnaðar og aukinna afkasta.
Netspor ehf. er eitt þeirra ráðgjafafyrirtækja sem hefur sérhæft sig
í ráðgjöf í Rekstrarstjórnun. Þar starfa nokkrir af helstu ráðgjöfum
og kennurum landsins á þessu sviði. Þeir hafa meðal annars þróað
námsbraut í flutningastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Þessi
námsbraut fékk góðar viðtökur í haust þegar hún var kynnt og er
nú fullbókað í námið.
Hér á landi hafa einnig þróast framúrskarandi hugbúnaðar-
lausnir á sviði vörustjórnunar og má þar nefna AGR sem gott
dæmi. Hjá GS1 Ísland er unnið að áhugaverðum lausnum á sviði
gagnalaugar („data pool“) þar sem verið er að samræma grunn-
upplýsingar vöru. Auk þess er rafræn skráning vörustreymis með
aðstoð handtölva þróuð hjá fjölda hugbúnaðarfyrirtækja.
mÆlaBorð StJórnenda
Mælaborð stjórnenda í rekstri fyrirtækja, samanstendur af fram-
legð, ABC-greiningum, rýrnun, veltuhraða, endingartíma birgða,
gæðum, afhendingarhlutfalli, þjónustustigi og GMROI (“gross
margin return on inventory”). En sá mælikvarði segir til um hvað
framlegðin er í hlutfalli af heildarbirgðakostnaði (fjárbinding, lag-
erhald, rýrnun, skráning o.fl.). Hlutfallið segir m.a. að vörur með
háa framlegð þola meiri birgðir en vörur með litla framlegð.
Langmikilvægasta verkefnið er þó að virkja mannauðinn í fyr-
irtækjum og tryggja að tími starfsmanna sé vel nýttur. Tími starfs-
manna er í raun helsta auðlind fyrirtækja og það þarf að ganga um
hana með virðingu og aga. Með því að forgangsraða viðskiptum,
vörum, viðskiptavinum og verkefnum og taka upp stjórntæki og
aðferðir Rekstrarstjórnunar, þá geta starfsmenn forgangsraðað
sínum tíma og tryggt að honum sé varið í það sem mestu máli
skiptir.
Það er ástæða fyrir því að í kínversku er notað sama táknið fyrir
kreppu og tækifæri. Kínverjar vita að í öllum þrengingum felast
tækifæri til að gera hlutina með nýjum hætti.
Það felast tækifæri í kreppunni!
S t J ó r n u n
Verkefni og ábyrgð vörustjóra
og innkaupastjóra
Verkefni og ábyrgð vörustjóra („supply chain manager“) og inn-
kaupastjóra („purchasing manager“) hafa breyst mikið á und-
anförnum árum. Með aukinni verkaskiptingu milli landa og fyr-
irtækja og úthýsingu á öðru en kjarnastarfsemi, hefur vöruflæði
aukist. Því eru þessi störf orðin „strategískari“ en áður og hafa
mun meiri áhrif á afkomu fyrirtækjanna.
Með aukinni alþjóðavæðingu, öflugum upplýsingakerfum,
nýjum vörukerfum, internetinu, auknum kröfum viðskiptavina,
þrýstingi á kostnaðarlækkun og æ styttri líftíma vöru eru sífellt
gerðar meiri kröfur um skilvirka innkaupastjórnun og vöru-
stjórnun.
Best í heimi
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
I S A L – S T R A U M S V Í K
ISAL náði besta árangri allra álvera heims við að lágmarka losun
fl úorkolefna árið 2008.* Flúorkolefni eru sterkar gróðurhúsalofttegundir
og stór hluti af heildarlosun margra álvera. Með því að skara fram úr
á þessu sviði losar álverið í Straumsvík 130 þúsund tonnum minna af
CO�-ígildum á ári en ef losun þess væri í meðallagi. Þess vegna segjum
við hiklaust: „Það er gott að framleiða ál í Straumsvík!“
Það er stefna fyrirtækisins að vera í fremstu röð í allri starfsemi sinni,
hafa stöðugar umbætur að leiðarljósi og starfa ávallt í sátt við umhverfi
og samfélag. Lykillinn að góðum árangri okkar er metnaður, þekking
og hæfni starfsfólks okkar.
* Samkvæmt skýrslu International Aluminium Institute.
upplýsingar í stað birgða
Verkefni heildsala og kaupenda hráefna ættu í auknum
mæli að beinast að því að reikna út hagkvæmasta inn-
kaupamagn með þeim aðferðum sem vörustjórnun býður
upp á. Þannig megi spara miklar fjárhæðir í fjárbindingu.
Betri söluspár og innkaupaáætlanir stuðla að lækkun kostn-
aðar og hærra þjónustustigi / afhendingarhlutfalli. Vandi
íslenskra fyrirtækja felst meðal annars í hinu mikla breyti-
leika í eftirspurn og skyndiákvörðunum. Hluti vandans felst í
hinum miklu sveiflum í gengi, vöxtum og eftirspurn. Erfitt er
að áætla langt fram í tímann. Þessi breytileiki („variability“)
eykur kostnað á öllum sviðum flutningakeðjunnar. Hægt
er að mæta þessu með auknum sveigjanleika og betra
skipulagi.