Frjáls verslun - 01.02.2010, Blaðsíða 63
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 1 0 63
lækkun kostnaðar
„Algengt er að beinn kostnaður lækki nokkuð þegar samið er við
Fjárstoð um þjónustu. Þetta á sérstaklega við í fyrirtækjum þar sem
verkferlar á fjármálasviði eru orðnir snúnir og hægt er að einfalda þá
verulega og þannig eyða minni tíma í viðkomandi verkefni. Samið er
um ákveðna þjónustuþætti og umfang sem rukkað er fyrir fast mán-
aðargjald þar sem viðskiptavinurinn veit hvað hann er að borga fyrir.
Breytingar sem slíkar hafa verið að lækka kostnað hjá fyrirtækjum
um 15-40%.
Áherslan á að vera á það sem skapar mest verðmæti. Fjármáladeild
skapar ekki verðmæti – en upplýsingar frá fjármáladeild eru verð-
mætar. Hjá Fjárstoð eru tæknilausnir og nýting þeirra mikilvægur
þáttur í þjónustunni sem oftar en ekki veitir fyrirtækjum betri nýt-
ingu á þeim fjárfestingum sem ráðist hefur verið í.“
Sérfræðingar á öllum sviðum
„Hjá Fjárstoð hafa viðskiptavinir aðgang að sérfræðingum á öllum
sviðum innan fjármálasviðs. Við erum með sérfræðinga í bókhaldi,
launavinnslu, reikningagerð, greiðslumiðlun, milliuppgjörum og árs-
uppgjörum og áætlanavinnu, svo dæmi sé tekið. Lítil og meðalstór
fyrirtæki þurfa oft á sérfræðingum að halda en eru ekki nógu stór
til að ráða til sín í fullt starf þennan hóp sérfræðinga og því þurfa
þau að sækja hana annað. Þá er lausnin að gera samning um aðgengi
að þeim sérfræðingum sem á þarf að halda hverju sinni. Þeir verða
hluti af fjármálateyminu sem vinnur fyrir fyrirtækið þitt og þekkja
innviðina betur en sérfræðingar sem eru að koma „utan úr bæ“ inn í
fyrirtækið í tímabundið verkefni. Sem dæmi þá gætu fyrirtækin verið
að greiða fyrir þjónustu Fjárstoðar svipaða upphæð og hálft til eitt
stöðugildi kostar. Inni í þeirri tölu væru þeir með bókara, launafull-
trúa, viðskiptafræðinga og aðra sérfræðinga sem getur verið erfitt að
finna í einum starfsmanni.“
Samningur um fast verð á þjónustunni
„Viðskiptavinir Fjárstoðar gera samning um fast verð á þjónustunni
miðað við umfang og þarfir hvers og eins og þar með verður þessi
kostnaður fastur en ekki óviss sem margir af okkar viðskiptavinum
líta á sem lykilatriði.
Hver viðskiptavinur velur það sem honum hentar, t.d. heildar-
þjónustu eða að láta okkur sjá um launaútreikning og mánaðarupp-
gjör.
Fjárstoð aðstoðar líka fyrirtæki tímabundið með aðstoð á fjár-
málasviðum. Ef það vantar t.d. aðstoð við afstemmingar fyrir ársupp-
gjör, afleysingar í bókhaldi eða fjármálastjóra svo dæmi sé nefnt. Gott
er að fá inn fagfólk sem skilur hvað þarf að gera en staldrar einungis
við til að klára verkefni en ílengdist ekki“
„Business Process
Outsourcing (BPO)
er tegund útvistunar
þar sem samið er
við þjónustuaðila um
vinnslu og ábyrgð á
fyrirfram skilgreindum
verkferlum.“
Borghildur Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjárstoðar.