Frjáls verslun - 01.05.2007, Síða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 53
Margrét Guðmundsdóttir
forstjóri Icepharma
Edda Rós Karlsdóttir
greiningardeild Landsbankans
EFTIR GUÐMUNDU ÓSK KRISTJÁNSDÓTTUR
„Edda Rós Karlsdóttir var yfirmaður
minn hjá greiningardeild Búnaðar-
bankans og síðan hjá greiningardeild
Landsbankans. Ég myndi segja að
hún væri leiðtogi í eðli sínu, hún er
beinskeytt, liggur ekki á skoðunum
sínum, er dugleg og drífandi og
hvetur aðra áfram. Hún er fljót að
greina aðalatriði frá aukaatriðum,
hræðist ekki ábyrgð, er afskaplega
fagleg, passar vel upp á undirmenn
sína og er sanngjarn og heiðarlegur
stjórnandi.
Það fyrsta sem maður tekur eftir
er hvað hún er eldklár, hún er líka
metnaðarfull og gerir miklar kröfur,
bæði til sjálfrar sín og þeirra sem
vinna með henni. Þegar hún hrósar,
getur maður verið viss um að eiga
inni fyrir því. Edda Rós er mikil fjöl-
skyldumanneskja, vinnan er bæði
ástríða og áhugamál og þegar hún er
ekki að sinna henni ræktar hún fjöl-
skylduna.
Hún hleypir ekki öllum að sér, en
við nánari kynni kemur kímnigáfan
vel í ljós, hún kemur vel fyrir sig orði
og er afar góð í því að halda tæki-
færisræður. Hún sker sig líka úr að
því leyti að vinir hennar og fjölskylda
koma úr ýmsum starfsstéttum og
áttum, sem gerir hana víðsýnni en
ella. Hún er ekki bara umkringd
bankafólki.“
– Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir er sér-
fræðingur á fyrirtækjasviði Landsbankans
Edda Rós Karlsdóttir er forstöðumaður
greiningardeildar Landsbankans.
EFTIR BESSA H. JÓHANNESSON
„Margrét Guðmundsdóttir er afspyrnu góður
stjórnandi því hún er heiðarleg og sanngjörn,“
segir Bessi H. Jóhannesson, framkvæmdastjóri
lyfjasviðs Icepharma. ,,Margrét hlustar á fólk og
tekur gagnrýni vel. Hún er einnig óhrædd við að
taka ákvarðanir og framkvæma.“
Bessi segir að Margrét velji sér samstarfsfólk
sem gætt sé ólíkum eiginleikum og að hún leggi
mikla áherslu á að jafnræði sé á milli stjórn-
enda. Hann segir að Margrét vinni hratt og vilji
sjá árangur verka sinna sem fyrst.
„Breytingastjórnun er Margréti eðlislæg og
hún sér ævinlega tækifæri í breytingum. Nær-
tækast er að segja frá sameiningu Austurbakka
og Ísmed við Icepharma í fyrra þar sem inn
komu jafnmargir starfsmenn og fyrir voru.
Þar sem Margrét var búin að undirbúa sam-
eininguna vel urðu starfsmenn ekki varir við
hana. Lykillinn að því hversu vel gekk að sam-
eina félögin var að undirbúa starfsmenn hvers
félags. Sérhver starfsmaður var tekinn í viðtal
um það hvort hann yrði með í nýju félagi eða
ekki þannig að þeir sem tóku þátt í sameinung-
inni voru framtíðarstarfsmenn. Þeir fengu síðan
að fylgjast með öllum þáttum sameiningarinnar
í gegnum ferilinn. Öllum starfsmönnum og
birgjum var því ljóst frá upphafi hvert stefndi
hjá sameinuðu félagi.“
- Bessi H. Jóhannesson er framkvæmdastjóri lyfja-
sviðs Icepharma.
Margrét Guðmundsdóttir er forstjóri Icepharma hf. og
það vakti athygli fyrr á árinu þegar hún og fleiri stjórn-
endur fyrirtækisins tóku sig til og keyptu fyrirtækið
þegar Atorka Group ákvað að selja það.