Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 156
156 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
ÁTTU VON Á 975 GESTUM?
Iceland Travel hefur víðtæka reynslu af skipulagningu á öllu því sem viðkemur
ráðstefnu-, sýninga- og fundahaldi. Láttu það vera okkar verkefni að sjá um
skipulagið, hvort sem þú átt von á 10 gestum eða 1000. Við bókum fundarstað
og gistingu, höfum yfir nægu starfsfólki að ráða, skipuleggjum skoðunarferðir
og pöntum veitingar. Við hlökkum til að starfa með þér.
VIÐ GERUM ÞIG AÐ GÓÐUM GESTGJAFA
Skútuvogi 13A · 104 Reykjavík · Sími 585 4300 · Fax 585 4390 · conferences@icelandtravel.is · www.icelandtravel.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
8
6
4
3
FI01864 Diskaauglysing 210X275.ai 6/20/07 3:30:41 PM
ICELAND TRAVEL:
Iceland Travel er leiðandi fyrirtæki í alhliða ferðaþjónustu á Íslandi. Fyrirtækið sem er eitt af félögum undir Icelandair Group er
aðili að SAF, Samtökum ferðaþjónustunnar,
og RSÍ, Ráðstefnuskrifstofu Íslands.
Fyrirtækið sérhæfir sig í þjónustu við
erlenda ferðaheildsala, móttöku skemmti-
ferðaskipa auk þess að bjóða sérhæfða hvata-
ferðaþjónustu og skipulagningu ráðstefna,
funda, viðburða hvers konar
Hjá Iceland Travel starfa um 60 manns
með yfirgripsmikla sérfræðiþekkingu á þessu
sviði. Helga Lára Guðmundsdóttir stýrir
MICE (Meetings, Incentives, Conference
og Events) deild Iceland Travel. Hún hefur
starfað hjá Iceland Travel í tuttugu og fjögur
ár, þar af verið í tólf ár yfirmaður ráðstefnu-
deildarinnar: „Starf mitt er aðallega dagleg
stjórnun, sala og markaðssetning á þjónustu
okkar. Við breyttum skipuriti fyrirtækisins
í fyrra, þ.e. sameinuðum hvataferðir ráð-
stefnum og það hefur gefið okkur aukinn
styrk út á markaðinn. Í MICE teyminu starfa
nú auk mín tólf manns í fullu starfi.“
Í apríl flutti fyrirtækið í nýuppgert húsnæði
á fyrstu hæði í Skútuvog 13a: „Nýja húsnæðið
hentar okkur starfsemi mjög vel og öll starfs-
aðstaða er til þess fallin að skapa góða umgjörð
og um reksturinn. Allir fastir starfsmenn fengu
hækkanleg skrifborð, góða mötuneytisað-
stöðu, sturtuaðstöðu fyrir þá sem vilja fara
út að hlaupa í hádeginu eða koma á hjóli auk
mjög góðrar fundaraðstöðu.“
Framundan hjá Iceland Travel eru mörg
stór verkefni og að sögn Helgu Láru má
t.d. nefna NATO þingið í byrjun október:
„Háannatíminn er sem áður maí-október en
það er alltaf að teigjast meira á honum í báða
enda. Í ár vorum við t.d. með stóra hópa í jan-
úar. Og þar sem við þurfum að vera í stöðugri
hugmyndavinnu í sambandi við afþreyingu
fyrir okkar kröfuhörðu viðskiptavini þá getur
verið snúið að finna afþreyingu sem hentar
þegar dagsbirtan er aðeins fjórir tímar. Við
höfum hingað til fundið lausnir sem henta,
enda mjög vel tengd öllum aðilum sem bjóða
hvers konar afþreyingu á Íslandi.“
Helga Lára segir að mikil uppbygging hót-
ela og um leið bætt ráðstefnuaðstaða hafi svo
sannarlega komið Íslandi enn betur á kortið
sem góðum stað til fundarhalda: „Flugsam-
göngur eru orðnar betri og við bjóðum uppá
frábæran mat og yndislega náttúru. Aukning
gesta til landsins hefur því verið stöðug og
það er hið besta mál. Okkar aðalkeppikefli er
að fá velgreiðandi viðskiptavini sem ganga vel
um náttúru okkar og uppfylla ýtrustu kröfur
þeirra þannig að þeir fari glaðir heim og vilja
koma aftur síðar. Það er okkur sem betur fer
að takast.“
Mörg stór verkefni framundan
Háannatíminn er sem áður
maí-október en það er
alltaf að teygjast meira á
honum í báða enda.
Helga Lára Guðmundsdóttir
stýrir MICE (Meetings,
Incentives, Conference og
Events) deild Iceland Travel.