Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 183
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 183
Treysta heilbrigðisgeiranum
„Netið og hin stafræna tækni hefur gjörbreytt fjölmiðlun á síðustu
árum,“ heldur Áslaug áfram. „Nú má segja að hver og einn neytandi
sé orðinn sinn eigin ritstjóri, velji efnið sem honum best líkar. Þá
skiptir auðvitað miklu að ráðgjafar setji efni fram með þeim hætti að
fanga megi athygli fólks og að efnið sé sett fram á trúverðugan hátt.
Það liggur líka í hlutarins eðli að þegar hægt er með nýrri tækni að
tala beint við ákveðna hópa á þeirra eigin forsendum verða skilaboðin
áhrifaríkari.“
Þegar spurt var um traust til ákveðinna geira
atvinnulífsins á Íslandi kom í ljós að heilbrigðisgeirinn
nýtur mests trausts hér á landi, 79% treysta honum.
Næst á eftir koma tæknifyrirtæki, þá bankarnir, því
næst orkufyrirtæki og sérfræðingar. Sérstaka athygli
vakti að hér á landi nýtur smásala trausts hjá einungis
22% áhrifavalda, sem er umtalsvert minna en í nágrannalönd-
unum.
Auglýsingar viðhalda ímynd
Fyrsta fjölþjóðlega könnun Edelman á trúverðugleika var gerð 2001
og hafa þær verið gerðar árlega síðan. Þessar kannanir hafa leitt margt
forvitnilegt í ljós. Sú fyrsta sýndi aukna þörf fyrir samfélagslega
ábyrgð fyrirtækja ef þau hygðust ná tilsettum árangri í viðskiptum. Í
könnuninni 2002 kom fram að tími stjörnuforstjóra væri liðinn og
traust á fyrirtækjum minnkaði, þó það hafi aftur aukist í seinni tíð.
Könnunin 2003 leiddi í ljós að fjölmiðlaumfjöllun væri átta sinnum
trúverðugari en auglýsingar. Ein niðurstaðna síðasta árs var sú að gæti
almenningur á einhvern hátt samsamað sig talsmanni fyrirtækis væru
meiri líkur á að fyrirtækið áynni sér traust en ef forstjórarnir sjálfir
væru í hlutverki talsmannsins.
Áslaug segir kannanir Edelmans undanfarin ár hafa sýnt, svo ekki
verður um villst, að trúverðugleiki verður ekki keyptur. „Kannanirnar
sýna að í stað þess að treysta á auglýsingar sem uppsprettu upplýs-
inga um vöru og þjónustu vilja neytendur fá upplýsingar frá þriðja
aðila sem er óháður og þeir þekkja eða er þekktur á umræddu sviði.
Auglýsingar eru mikilvægar til að viðhalda ímynd fyrirtækja en aðrar
leiðir eru yfirleitt vænlegri til að byggja upp ímynd og
miðla upplýsingum.“
„Aðferðir við miðlun upplýsinga verða aldrei höggnar
í stein heldur verða þær að taka mið af þeim upplýs-
ingum sem við höfum hverju sinni um viðhorf þeirra
sem eiga að taka á móti. Við verðum einnig að vera opin
fyrir nýjum leiðum í samskiptum.“
Kjarnakonur
Eins og áður sagði verður fimm ára afmæli AP almannatengsla
fagnað síðar í sumar. Stofndagurinn, 17. ágúst 2002, var engin til-
viljun. „Þetta var afmælisdagur ömmu minnar, Áslaugar heitinnar
Gísladóttur, sem var mér alla tíð mjög náin. Ég hafði þá staðföstu trú
að ef ég stofnaði fyrirtækið á þessum degi, myndi vel farnast eins og
raunin hefur orðið. Amma var ein af þessum íslensku kjarnakonum
og hvatti hún mig óspart til dáða, til dæmis að fara í nám og að nýta
þau tækifæri sem gefast í lífinu. Hennar orð til mín voru: Þori, get
og vil. Það var dýrmætt að hafa ömmu sem vin, það er svo margt sem
eldri kynslóðir geta miðlað okkur, sem yngri eru, af sinni reynslu,“
segir Áslaug.
„Aðferðir við
miðlun upplýsinga
verða aldrei
höggnar í stein.“
Íslendingar treysta heilbrigðisgeiranum best en skemmtanaiðnaðinum síst. Athygli vekur hve smásöluverslun nýtur lítils trausts hér á landi.
Á S L A U G P Á L S D Ó T T I R