Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 189
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 189
Á Vesturlandi er aðeins ein kona bæj-
arstjóri, það er í Stykkishólmi, þar sem Erla
Friðriksdóttir stýrir málum. Á Vestfjörðum
er staðan hins vegar talsvert önnur – en
á Ströndum gegna konur forystustörfum í
fjórum sveitarfélögum; það eru oddvitarnir
Oddný Þórðardóttir í Árneshreppi, Jenný
Jensdóttir í Kaldrananeshreppi og Þorgerður
Sigurjónsdóttir í Bæjarhreppi, allt fámennir
sveitahreppar. Í Strandabyggð, sem m.a. nær
yfir Hólmavík, er Ásdís Leifsdóttir sveit-
arstjóri. Á Tálknafirði, á sunnanverðum Vest-
fjörðum, er Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri. Á Norðurlandi vestra stýrir
kona málum í aðeins einu sveitarfélagi, það
er Jóna Fanney Friðriksdóttir, bæjarstjóri á
Blönduósi.
Norðurland eystra
Á Norðurlandi eystra er staðan öllu betri,
hvað jafnréttismálin áhrærir, en í sextán
sveitarfélögum þar eru konur framkvæmda-
stjóra fimm sveitarfélaga. Sýnu best er staðan
í Dalvíkurbyggð við utanverðan Eyjafjörð;
þar er Svanfríður Jónasdóttir fyrrv. alþing-
ismaður bæjarstjóri, auk þess sem Anna Sig-
ríður Hjaltadóttir er formaður bæjarráðs og
Bjarnveig Ingadóttir forseti bæjarstjórnar. Á
Akureyri er Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri, fyrst kvenna þar í bæ, en hún tók
við embættinu snemma á þessu ári þegar
Kristján Þór Júlíusson söðlaði um og fór í
landsmálapólitíkina. Í Grýtubakkahreppi,
sem meðal annars nær yfir Grenivík, er
Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri, en þess má
geta í framhjáhlaupi að hún er systir Val-
gerðar fyrrv. ráðherra og nýkjörins varafor-
manns Framsóknarflokksins. Fyrir austan
Vaðlaheiði, það er í Þingeyjarsýslum, er
staðan sú að í Aðaldalshreppi er Ólína
Arnkelsdóttir oddviti hreppsnefndar og
jafnframt framkvæmdastjóri sveitarfélags-
ins – og í Mývatnssveit er Guðrún María
Valgeirsdóttir sveitarstjóri og Margrét Hólm
Valsdóttir er oddviti.
Frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur. Lengst til hægri situr Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, en hún var nýlega kjörin
í það embætti með öllum atkvæðum. Það mun vera í annað skipti í sögu borgarstjórnar sem það gerist.