Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 190
190 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
Austurland
Á Austurlandi er kona bæjarstjóri í
fjölmennasta sveitarfélagi landshlut-
ans, Fjarðabyggð. Helga Jónsdóttir tók
við því embætti á síðasta ári, en hún
hefur með störfum sínum í tímans rás
um margt verið brautryðjandi í jafn-
réttismálum. Var meðal annars aðstoð-
armaður Steingríms Hermannssonar í
forsætis- og utanríkisráðuneytunum,
skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu,
starfaði hjá Alþjóðabankanum í Wash-
ington DC og var borgarritari í tíð
Reykjavíkurlistans. Í Fljótsdalshreppi,
næsta fámennum sveitahreppi innst í
Fljótsdal, er Gunnþórunn Ingólfsdóttir
oddviti og jafnframt framkvæmdastjóri
sveitarfélagsins.
Suðurland
Á Suðurlandi hafa konur gert sig gild-
andi í sveitarstjórnarmálum og tekið við
stjórn mála allvíða. Aldís Hafsteinsdóttir
er bæjarstóri í Hveragerði og Ragn-
heiður Hergeirsdóttir í Árborg, en báðar
sitja þær einnig í bæjarstjórn fyrir hönd
flokka sinna. Margrét Sigurðardóttir er
sveitarstjóri í Flóahreppi, sem spannar
yfir lágsveitir Árnessýslu. Í Ásahreppi,
fámennu sveitarfélagi vestast í Rang-
árvallasýslu, er Eydís Þorbjörg Indriða-
dóttir oddviti og jafnframt sveitarstjóri
og í Rangárþingi eystra sem nær m.a.
yfir Fljótshlíð, Landeyjar og Eyjafjöll
stýrir Unnur Brá Konráðsdóttir málum.
Suðurnesin
Og að lokum Suðurnesin. Þar eru fimm
sveitarfélög en kona bæjarstjóri á aðeins
einum stað, það er Oddný Guðbjörg
Harðardóttir í Garðinum. Eigi að síður
eru konur allvíða býsna áhrifamiklar í
sveitarstjórnarmálum þar syðra, svo sem
í Reykjanesbæ, en forseti bæjarstjórnar
þar er Björk Guðjónsdóttir nýkjörinn
þingmaður Sjálfstæðisflokks í Suðurkjör-
dæmi.
Söguleg mynd. Frá því í árslok 2004 og fram á vordaga 2005 voru konur bæjarstjórar í fjórum
sveitarfélöguum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta voru þær Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borg-
arstjóri og nú alþingismaður, Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri og nú forstjóri BYKO,
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og nýkjörinn alþingismaður, og Hansína
Á. Björgvinsdóttir, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi. Á kjörtímabilinu mun Ragnheiður
Ríkharðsdóttir hætta sem bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Það merkir: Allar hættar.
K O N U R Í S V E I T A R S T J Ó R N U M
Hlutur kvenna í sveitarstjórnarmálum hefur aukist taktföstum
skrefum undanfarin ár, enda þótt oft þyki hægt miða.
M
YN
D
: 3
65
M
IÐ
LA
R
/
F
R
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ