Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 216
216 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
dk hugbúnaður býður uppá heildarlausn fyrir fyrirtæki þitt.
Viðskiptalausn sem stuðlar að vexti og velgengni fyrirtækis þíns.
Hugbúnaðurinn er þægilegur í uppsetningu, hraður og aðgengilegur
í framsetningu.
Örugg fjárfesting til framtíðar – veljum íslenskt hugvit!
Fjárhagur
Skuldunautar
Lánadrottnar
Sölureikningar
Birgðir
Innkaup
Verk
Laun
Afgreiðslukerfi (dkPos).
...söluhæsti íslenski viðskiptahugbúnaðurinn
hugbúnaður ehf. Hlíðasmára 17 · 201 Kópavogur · Sími 510 5800 · dk@dk.is · www.dk.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
DK, A4 imynd 2007 E.ai 6/19/07 3:23:13 PM
Við bjóðum upp á heildarlausnir fyrir stór og smá fyrirtæki,“ segir Gunnhildur Fjóla Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá dk-hugbúnaði. „DK-hugbúnaður er upp-
lýsingakerfi samsett úr stöðluðum einingum og viðskiptavinurinn
velur þá heildarlausn sem hentar starfsemi hans. Nú þegar hafa selst
á fjórða þúsund kerfa.“
Verið er að þróa hugbúnaðinn með útrás í huga en hann er seldur
til Svíþjóðar, Danmerkur og Englands og eru þó
nokkur kerfi í notkun þar. Gunnhildur segir að
lögð sé áhersla á að hugbúnaðurinn sé samhæfður
og notendavænn. „Notandinn er í fyrsta sæti.“
Gunnhildur segir að í dk-hugbúnaði sé boðið
upp á allar helstu kerfiseiningar sem fyrirtæki þurfi. Á meðal kerfa
sem tilheyra dk hugbúnaði eru fjárhaldsbókhald, launakerfi, birgða-
kerfi, innkaupakerfi, tollakerfi, vörumóttökukerfi og félagakerfi en
ýmis félög og lífeyrissjóðir eru með það í notkun. Þá má einnig
nefna eignakerfi, skuldunauta- og lánardrottnakerfi, verkbókhald og
afgreiðslukerfi. Þá er um að ræða lotukerfi lyfja sem apótek sem og
sum sjúkrahús nota að ógleymdu framtalskerfinu sem allar helstu
endurskoðenda- og bókhaldsstofur nota við gerð skattframtala.
„Þjónustudeildin hjá okkur, sölumenn og ráðgjafar leitast við að
finna út hverju viðskiptavinurinn þarf á að halda og að hann hafi alla
þá þætti sem leysi starfsemi hans. Við metum hvert fyrirtæki fyrir
sig.“
Gunnhildur segir að sífellt sé verið að styrkja hugbúnaðinn í heild
sinni. Í fyrra var lögð áhersla á innkaupakerfið og nýjasta viðbótin er
afgreiðslukerfið dkPos sem mörg fyrirtæki eru að innleiða um þessar
mundir. Þá nefnir hún CRM-hluta sem fyrirtæki
geta nýtt sér til markaðsherferða fyrir núverandi og
væntanlega viðskiptavini.
Áhersla á viðskiptahugbúnað Gunnhildur er
kerfisfræðingur en hún stundaði nám við Tölvuháskóla Verzlunar-
skóla Íslands auk þess að stunda frekara nám í Svíþjóð. Eftir að hafa
starfað sem forritari í nokkur ár hóf hún störf hjá TOK og síðan hefur
hún einbeitt sér að viðskiptahugbúnaðarlausnum. Hún stofnaði ásamt
Sigríði Hafberg fyrirtækið Retis ehf. árið 2000 en dk-hugbúnaður ehf.
og Retis ehf. hafa ætíð unnið náið saman og er samrunaferli í gangi.
Hjá fyrirtækjunum vinna 27 manns. Þar er á ferðinni samstíga hópur
reynslumikilla sérfræðinga í viðskiptahugbúnaði.
DK-HUGBÚNAÐUR:
Notandinn er í fyrsta sæti
Gunnhildur Fjóla Valgeirsdóttir. „Þjónustudeildin hjá okkur, sölumenn og ráðgjafar leitast við að finna út hverju viðskiptavinurinn þarf á að
halda og að hann hafi alla þá þætti sem leysi starfsemi hans.“
Nýjasta viðbótin er
afgreiðslukerfið dkPos.