Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 145
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 145
M
argrét Guðmundsdóttir varð þekkt í viðskiptalífinu á
níunda áratugnum þegar fréttir bárust um það heim
að hún væri komin til æðstu metorða hjá kúveiska
olíufélaginu Q8 í Danmörku. Lengi vel hélt hún sig
við olíu því þegar hún kom heim til Íslands vann hún
í níu ár samfellt hjá Skeljungi. Undanfarið hefur hún
verið forstjóri Icepharma og þar er saga sem þarft er að segja; öðrum
til eftirbreytni. Sú saga gengur út á að stökkva á tækifærið þegar það
gefst.
Stjórn Atorku Group tilkynnti snemma á árinu að fyrirtækið ætl-
aði að selja nokkur fyrirtæki úr eignasafni hér á landi. Þar á meðal
var Icepharma. Í stað þess að sitja og bíða fóru Margrét og Kristján
Jóhannsson, lektor við Háskóla Íslands, fyrir hópi fjárfesta og keyptu
fyrirtækið. Kristján hafði verið stjórnarmaður í fyrirtækinu. Hann
fór fyrir hópi fjárfesta utan þess en Margrét fyrir hönd lykilstjórn-
enda í því, en þeir eru framkvæmdastjórarnir Karl Sigurðsson, Bessi
Jóhannesson, Björg Dan Róbertsdóttir og Stefán A. Stefánsson.
„Maður verður eigingjarn og vill fá að hafa fingurna í því sem
maður hefur tekið þátt í að byggja upp,“ segir hún og bætir því við
að eignarhaldsbreytingarnar hafi ekki breytt því hvernig fyrirtækið er
rekið. „Við erum bjartsýn, sjáum mörg tækifæri á markaðnum, en
fyrirtækið sérhæfir sig í sölu og dreifingu á lyfjum, heilsuvörum og
öðrum vörum til heilbrigðisstofnana og -fyrirtækja.“
„Fyrir okkur var þetta jákvætt, sem og fyrir starfsfólkið og erlenda
birgja og íslenska heilbrigðiskerfið naut líka góðs af, því hér hefðu
getað komið inn aðilar sem vildu breyta og bylta og það setur alltaf
hreyfingu á allan markaðinn sem ekki hefði endilega verið til góðs
fyrir heildina. Mörg fyrirtæki hafa gengið kaupum og sölum undan-
farin ár og sum þeirra hafa farið illa á því, andinn hefur verið tekinn
úr þeim og áherslur kannski gerbreyst.
Ég er ekki að segja að fyrirtæki eigi ekki að fara í gegnum breyt-
ingar, því þær eru oftast af hinu góða. En ef breytingarnar gerast
hratt og eru mjög viðamiklar geta fyrirtæki laskast. Sum ná sér aftur
en við hefðum ekki verið tilbúin að fara í gegnum einn rússíbanatúr-
inn í viðbót, það hefði alla vega reynt verulega á þolrifin. Þess vegna
var þetta svo farsæl breyting og besta lausnin.“
Margrét segist ekki finna mikinn mun á að vera eigandi eða
„bara“ forstjóri. „Ég finn einna helst fyrir ánægjunni í kringum mig
Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri
Icepharma, stökk á tækifærið ásamt
fleiri stjórnendum fyrirtækisins og
keypti það þegar Atorka ákvað að
selja fyrirtækið fyrr á árinu. Þannig
greip hún tækifærið þegar það gafst
og fór fyrir hópi fjárfesta ásamt
Kristjáni Jóhannssyni.
AÐ STÖKKVA Á TÆ KIFÆRIN
„Ég er ekki sérstaklega
áhættusækin en hafi
ég einhvern tíma átt að
stökkva þá var það núna.“