Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 200
200 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Hér eru svo mörg ný tækifæri, ég held að það að flytja austur
hafi verið besta ákvörðun sem
við höfum tekið í lífinu,“ segir
Janne Sigurðsson sem er dönsk,
tölvuverkfræðingur að mennt og
starfar sem framkvæmdastjóri
ferlaþróunar Fjarðaáls.
Janne og maður hennar,
Magnús Sigurðsson, kynntust
fyrir 19 árum þegar Janne vann í
fiski á Íslandi. Þau fluttust fljót-
lega til Danmerkur og eignuðust
tvö börn, en Janne segist alltaf
hafa langað aftur til Íslands, þó
að óvissa um atvinnumöguleika
hér heima hefði alltaf komið
í veg fyrir að þau létu draum
hennar rætast.
„Okkur hafði alltaf langað til
að flytja austur, en þar var bara
aldrei mikla spennandi vinnu
að fá. Svo þegar við fréttum af
Fjarðaáli, þá ákváðum við að
skella okkur til Íslands,“ segir
Janne, sem hefur tíu ára reynslu
sem stjórnandi í Danmörku, og
var meðal annars deildarstjóri
ferlaþróunar í KMD (IT) og
deildarstjóri hjá Siemens Mobile
Phones.
Þau fluttu því heim sumarið
2005 og búa nú á Eskifirði, þar
sem fjölskyldan er hæstánægð,
enda býr fjölskylda Magnúsar í
næsta nágrenni.
„Dóttir mín var 15 ára þegar
við fluttum, sem er kannski ekki
besti aldurinn til að flytja á milli
landa, en fimm vikum eftir að við
komum, sagðist hún aldrei ætla
að flytja til Danmerkur aftur, þar
sem hún hafði búið alla sína ævi.
Börnin eru því meiri Íslendingar
en Danir,“ segir Janne og hlær.
Starfið hjá Fjarðaáli
Alcoa Fjarðaál sf. er að reisa
álver í Reyðarfirði sem tók til
starfa í byrjun apríl 2007. Fram-
leiðslugeta álversins verður 346
þúsund tonn og starfsmenn
verða um 400, en um 270 eru
komin til starfa. Af þeim er þriðj-
ungur konur og meðal fram-
kvæmdastjóra er einnig þriðj-
ungur konur.
Janne fékk vinnu hjá Fjarðaáli
sem framkvæmdastjóri upplýs-
ingasviðs tæpu ári eftir að þau
fluttu heim, var í því starfi í tíu
mánuði og tók svo við núverandi
starfi.
„Ég byrjaði í skemmtilegu
starfi hjá Fjarðaáli og fór svo í
ennþá skemmtilegra starf. Við
erum teymi sem skipuleggjum
fyrirtækið með ferlum og erum
ábyrg fyrir því hvernig þessi
ferli síðan vinna saman innan
fyrirtækisins. Eins sinnum við
gæðastjórnun og rannsóknar-
stofunni,“ útskýrir hún.
Hún bætir við að þrátt fyrir
ýmiss konar vandkvæði sem
fylgja því að vinna á stað sem
er í byggingu, þá skipti það ekki
máli því að starfsfólkið sé sam-
einað í því að byggja upp góðan
starfsvettvang og góður andi ríki
meðal þeirra.
„Það er kannski of heitt á
skrifstofunni eða of kalt, en
okkur er bara alveg sama, hér
er svo góður andi og það er svo
mikil orka og kraftur í starfs-
fólkinu. Stundum held ég að
það sé öðruvísi fólk sem kemur
í vinnu hér, fólk sem er tilbúið
að gera eitthvað nýtt og spenn-
andi og öðruvísi,“ segir Janne
að lokum.
ALCOA FJARÐAÁL:
Orka og kraftur á Reyðarfirði
„Stundum held ég að
það sé öðruvísi fólk
sem kemur í vinnu hér,
fólk sem er tilbúið að
gera eitthvað nýtt
og spennandi og
öðruvísi.“
Janne Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
ferlaþróunar
Fjarðaáls, segir
gífurlegan kraft og
orku búa í starfs-
fólki álversins á
Reyðarfirði.
www.alcoa.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
3
40
36
0
6.
20
07
Samhentur hópur karla og kvenna
Álver Alcoa Fjarðaáls á að vera góður vinnustaður fyrir konur sem karla. Markmiðið er að kynjahlutfall í
fyrirtækinu verði sem jafnast og aldursdreifing góð. Af 320 einstaklingum, sem hafa nú verið ráðnir til
Fjarðaáls, eru 34% konur og við viljum gera betur en það. Við hvetjum því sérstaklega konur til að sækja
um störf hjá okkur.
Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMG-Mannafl).
Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
(sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Guðlaugi Arnarsyni
(gudlaugur.arnarson@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000.
Fjölbreytt og örugg störf
Álver Alcoa Fjarðaáls er hannað með það í huga að öll
störf henti konum ekki síður en körlum. Okkur vantar
fleiri starfsmenn í álframleiðslu og málmvinnslu.
Tæknivæðing auðveldar vinnuna og verkefni hvers
starfsmanns verða fjölbreytt og krefjast ekki mikilla
líkamsburða eða endurtekinna hreyfinga.
Þjálfun og starfsþróun
Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar ákveðnar
kröfur um menntun eða kunnáttu. Í boði verður
fjölbreytt fræðsla sem á að nýtast bæði innan og utan
fyrirtækisins. Mikið er lagt upp úr starfsþróun og
símenntun.
Góð launakjör
Launakjörin eru góð og kynbundinn launamunur
útilokaður. Laun eru greidd samkvæmt vinnustaðar-
samningi Alcoa Fjarðaáls og Afls – Starfsgreinafélags
Austurlands. Samninginn er hægt er að nálgast á
alcoa.is. Framleiðslustarfsmenn vinna ýmist á vöktum
eða í dagvinnu og hlutastörf koma einnig til greina.
Jafnrétti og velferð
Fjarðaál styður öflugt og fjölskylduvænt samfélag.
Þess vegna viljum við að kynjahlutfall í álverinu verði
sem jafnast og aldursdreifing góð. Starfsmenn fá
líkamsræktarstyrk og hafa aðgang að öflugri
velferðarþjónustu.
Síðustu framleiðslustörfin í boði
Álver fyrir konur