Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 134
134 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
VOGABÆR:
Árið 1976 opnuðu hjónin Guð-mundur Sigurðsson og Sigrún Ósk Ingadóttir verslun að Vogagerði 8,
Vogum, Vatnsleysuströnd, sem þau nefndu
Vogabæ. Þegar stórmarkaðirnir tóku yfir
stóran hluta verslunar sneru þau sér að
minniháttar matvælaframleiðslu. Árið
1989 var rekstur E. Finnssonar í Hafnar-
firði keyptur, en það fyrirtæki framleiddi
fjórar tegundir af sósum. Vogabær hefur
vaxið og dafnað og vöruflokkum fjölgað.
Guðmundur og Sigrún stjórna fyrirtækinu
enn í dag, Guðmundur er framkvæmda-
stjóri og Sigrún stjórnarformaður. Tveir af
þremur sonum þeirra vinna einnig við fyr-
irtækið sem nú er til húsa að Eyrartröð 2a
í Hafnarfirði. Sigrún fræðir okkur frekar
um sögu fyrirtækisins og fyrir hvað það
stendur:
„Ástæðan fyrir því að við fórum út í að
framleiða ídýfur var að við vorum alltaf á
föstudögum með í kjötborðinu heimalag-
aðar ídýfur og snakk sem við buðum við-
skiptavinum okkar að smakka. Þegar við
seldum verslunina, héldum við húsnæðinu
og fórum af stað með framleiðslu á ídýfum
sem við höfðum þróað og nefndum þær
Voga. Við þurftum fljótt að stækka við
okkur svo ég tali nú ekki um þegar við
vorum búin að kaupa E. Finnsson. Í kjölfar
kaupanna ákváðum að halda ídýfunum
undir nafni Voga og kenna sósurnar við E.
Finnsson. Fyrirtækið stækkaði jafnt og þétt
og fór svo að lokum að við fluttum 2001
til Hafnarfjarðar í stærra og betra húsnæði,
sem við byggðum sjálf.“
Vogabær hefur komið með margar nýj-
ungar í sósum frá því E. Finnsson var keypt
og segir Sigrún okkur frá tilurð þess að farið
var að framleiða sósur án eggjarauðu: „Það
var kona hjá okkur sem átti son sem var
með eggjaóþol eftir að hann lenti í slæmu
slysi. Hann langaði mikið í pítusósu, en
mátti ekki neyta hennar vegna eggjarauð-
unnar í henni. Þetta ýtti undir að fara
að framleiða eggjalaust mæjónes. Í stað-
inn fyrir eggjarauðurnar er notað sérstakt
bindiefni sem framleitt er úr byggi, þör-
ungum og baunum. Við fengum góð við-
brögð við þessari framleiðslu okkar, enda
um fituminni sósu að ræða, og fjölguðum
vöruflokkum sem voru eggjarauðulausar.
Sigrún er bæði hárgreiðslukona og lærð
klassísk söngkona og einn vöruflokkurinn
hjá Vogabæ nefnist óperusósur. Heita þær
allar eftir frægum óperum: „Það gekk ekki
alltof vel að koma þeim inn í verslanirnar
og urðum við að fækka tegundum en erum
enn með sósur sem ganga undir óperunöfn-
unum, get ég nefnt, Carmen, Aida, Nabucco
og Salome.“
Hjá Vogabæ er alltaf verið að huga að
þróun nýrra vara og endurbæta þær sem
fyrir eru og er Sigrún spurð hvort eitthvað sé
framundan í þeim efnum: „Við erum nýlega
sjálf farin að búa til sýrðan rjóma og svo
settum við á markaðinn gott úrval af grill-
sósum í nýjum umbúðum sem hafa fengið
góðar undirtektir.“
Matvælafyrirtæki í stöðugri þróun
Sigrún Ósk Ingadóttir stjórnarformaður í Vogabæ.
Vogabær framleiðir fjórar
tegundir af Voga ídýfum,
þrjár tegundir af E. Finns-
son mæjónesi, tíu tegundir
af E. Finnsson kaldlöguðum
sósum úr sýrðum rjóma
og mæjónesi, E. Finnsson
tómatsósu, E. Finnson sætt
sinnep og fjórar tegundir af
E.Finnsson óperusósunum,
salsa, marineringar, og sam-
lokusósur og sex tegundir af
grillsósum: pipar-, hvítlauks-,
þúsundeyja-, hunangs-
sinneps-, béarnaise-
og gráðostasósu með ekta
íslensku gráðostakurli í.