Frjáls verslun - 01.05.2007, Side 153
Kröfur fyrirtækja í dag verða stöðugt meiri um hraða og sífellda aðlög-unarhæfni og skiptir upplýsinga-
tækni mun meira máli í dag heldur en hún
gerði áður.
„Áður fyrr var litið á upplýsingatækni sem
kostnaðarlið sem reynt var að halda niðri,
en núna skiptir upplýsingatæknin gríðarlegu
máli, hún er orðin hluti af stefnumótun
stærstu fyrirtækjanna, og það segir sitt,“
segir Halldóra Matthíasdóttir, framkvæmda-
stjóri sölusviðs Opinna kerfa. Halldóra hefur
starfað hjá Opnum kerfum síðan árið 2000
og var markaðsstjóri áður en hún tók við
stöðu framkvæmdastjóra sölusviðs á síðasta
ári.
Opin kerfi er upplýsingafyrirtæki, stofnað
fyrir rúmum 20 árum sem útibú Hewlett
Packard á Íslandi. Fyrirtækið er leiðandi fyrir-
tæki í upplýsingatækni á Íslandi og sérhæfir
sig í sölu tölvu- og samskiptabúnaðar, auk
ráðgjafar og þjónustu.
„Hewlett Packard er eitt örfárra fyrirtækja
sem bjóða upp á heildarlausnir bæði fyrir
heimili og fyrirtæki. Við erum með HP prent-
ara, ljósmyndatækni, borðtölvur, fartölvur,
gagnageymslur, netþjóna, afritunarlausnir,
netbúnað og fleira,“ segir Halldóra.
Auk HP vara selur fyrirtækið og annast
þjónustu við vél- og hugbúnað frá Cisco,
Alcatel, Nortel, Linksys og Belkin. Opin
kerfi eru Microsoft Gold Partner, og eru
stærsti sölu- og þjónustuaðili Micro soft á
Íslandi. Þá eru Opin kerfi leiðandi í Linux
lausnum og er m.a. „Training Partner“ fyrir
Red Hat.
„Við leggjum ríka áherslu á langtímasam-
band við viðskiptavini okkar og bjóðum upp
á ýmiss konar samninga, svo sem alrekstur.
Við leitumst við að skapa fordæmi með
verkum okkar og vinnu og við leggjum okkur
fram við að veita framúrskarandi ráðgjöf
enda starfar landslið sérfræðinga hjá fyrirtæk-
inu.“ segir Halldóra.
Starfsfólkið mesti auðurinn
En fyrirtækinu er ekki eingöngu í mun að
tryggja ánægju viðskiptavinanna.
„Við erum þekkingarfyrirtæki og það er
mikil sérþekking innan fyrirtækisins. Þar
af leiðandi skiptir þekking, menntun og
reynsla starfsmannanna 110 okkur gríðarlegu
máli og því er ánægja þeirra í starfi mjög
mikilvæg. Við gerum því reglulega kann-
anir, bæði meðal starfsfólks og viðskiptavina
okkar, þar sem við mælum ánægju þeirra
með fyrirtækið,“ segir Halldóra að lokum.
Halldóra Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri sölusviðs Opinna kerfa, segir starfsmenn fyrirtækisins búa yfir gríðarlegri þekkingu,
sem gerir Opnum kerfum kleift að bjóða upp á fjölmargar upplýsingatæknilausnir, hvort sem er fyrir heimili eða fyrirtæki.
Upplýsingatæknin ekki
lengur kostnaðarliður
OPIN KERFI:
„Við leggjum ríka
áherslu á langtíma-
samband við viðskipta-
vini okkar.“
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 153
K
Y
N
N
IN
G