Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 176
KYNNING176 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
Fjölskyldumynstur verða æ flókn-ari. Eignir einstaklinga hafa aukist að verðgildi á síðustu árum. Aldrei
hefur því verið mikilvægara en nú að sýna
forsjálni þegar stofnað er til óvígðrar sam-
búðar eða hjúskapar.
„Ég tel að allir sem standa í þessum
sporum eigi að leita til lögmanns og þá
helst lögmanns, sem hefur sérhæft sig í
sifjamálum, til að fá upplýsingar og ráð-
leggingar um það hvort og þá hvaða ráð-
stafanir skynsamlegast sé að gera,“ segir
Dögg Pálsdóttir hrl., eigandi DP LÖG-
MANNA.
Kaupmálar
Dögg bendir á að reynslan sýni að fjárhags-
staða fólks sé mjög mismunandi við upphaf
sambúðar eða hjúskapar. Reynslan sýnir að
slitnað getur upp úr sambúð og hjóna-
böndum. Hjúskaparlögin tryggja helminga-
skipti við hjónaskilnað. En helmingaskipti
geta stundum verið mjög ósanngjörn, ekki
síst ef annar aðilinn átti verulega meiri eignir
við upphaf hjúskapar en hinn. Arðbærar
fjárfestingar einstaklinga hafa gert það að
verkum að verulegur munur á eignarstöðu
hjónaefna verður æ algengari. Ef víkja á frá
helmingaskiptum við hjónaskilnað verður
að gera kaupmála. Þetta má gera áður en til
hjónabands er stofnað eða meðan á hjúskap
stendur.
Sérhæfð ráðgjöf
nauðsynleg
Dögg Pálsdóttir
hæstaréttarlögmaður
á og rekur DP LÖGMENN
og DP FASTEIGNIR.
Dögg Pálsdóttir hæstaréttarlögmaður
hefur rekið lögmannsstofu frá
árinu 1996, undir heitinu DP
LÖGMENN frá ársbyrjun 2003 er
skrifstofan flutti að Hverfisgötu
4-6. Í ársbyrjun 2004 bætti Dögg
fasteignasölurekstri, DP FAST-
EIGNUM, við starfsemina.
Hjá DP LÖGMÖNNUM og DP
FASTEIGNUM starfa nú ellefu
starfsmenn, sex lögmenn, þrír
sölumenn, fjármálastjóri og ritari.
Auk þess eru laganemar ráðnir til
tímabundinna starfa, árið um kring.
DP FASTEIGNIR selja allar gerðir
fasteigna. Lögð er áhersla á trausta
og góða þjónustu. Lögmenn DP
LÖGMANNA, sem einnig eru
löggiltir fasteignasalar, sjá um alla
samningsgerð.
DP LÖGMENN veita alla
almenna lögmannsþjónustu
fyrir einstaklinga og fyrirtæki,
og býr stofan að sérþekkingu í
fjölskyldumálum, skaðabótamálum,
m.a. sjúklingatryggingamálum,
stjórnsýslumálum og málum er
tengjast fasteignum. Dögg er aðjúnkt
við lagadeild Háskólans í Reykjavík
og kennir þar fjölskyldu- og erfðarétt
og heilbrigðisrétt.
DP LÖGMENN OG
DP FASTEIGNIR