Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 174
174 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Brú II Venture Capital Fund er fjárfestingasjóður sem fjárfestir í óskráðum og ört vaxandi
fyrirtækjum og er stærsti innlendi fjárfestingarsjóðurinn á sínu sviði.
Kraftmikil nýsköpun
Brú – Venture Capital hf. Borgartún 30, 7. hæð 105 Reykjavík Sími: +354 545 5400 bru@bru.is
Brú er fjárfestingafélag sem fjárfestir í óskráðum og ört vaxandi fyrir-tækjum. „Þegar ég segist vinna hjá
fjárfestingafélagi halda flestir að ég vinni hjá
banka, sem er alls ekki raunin. Brú er fjár-
festingafélag sem rekur þrjá sjóði, og það má
einfalda málið með því að segja að við séum
að leita að næsta Marel eða Össuri,“ útskýrir
Ásta Þórarinsdóttir fjárfestingastjóri. „Starf
mitt felst í að leita að góðum fjárfest-
ingatækifærum. Þetta er mjög fjölbreytt og
gefandi starf og það er svolítið skemmtilegt
að segja frá því að einn daginn þarf ég að
kafa ofan í upplýsingatækni, annan daginn
í orku og svo líftækni þann þriðja,“ segir
hún og hlær.
Brú II Brú stjórnar þremur fjárfestinga-
söfnum sem samanstanda meðal annars af
fyrirtækjum á Íslandi, í Bandaríkjunum,
Noregi, Danmörku og Bretlandi. Fyrirtækið
hefur nýverið lokið við að fjármagna sjóð-
inn Brú II, sem er nýr sjóður sem fjár-
festir í þroskaðri vaxtarfyrirtækjum og er
stærsti innlendi fjárfestingasjóðurinn á sínu
sviði, en samanlögð fjárfestingageta sjóðsins
nemur um 5,7 milljörðum króna. Lífeyris-
sjóðir eru stærstu fjárfestar sjóðsins og þar
á meðal eru Gildi líf-
eyrissjóður, Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, Líf-
eyriss jóður verslunar-
manna, Lífeyrissjóðurinn
Líf iðn, Lífeyriss jóður
Austurlands og Sameinaði
lífeyrissjóðurinn, en einnig
hafa Straumur – Burðarás
fjárfestingabanki, Saxhóll
hf., Tryggingamiðstöðin og Nýsköpunar-
sjóður fjárfest í sjóðnum.
„Sjóðurinn sérhæfir sig í þroskaferli
nýsköpunarfyrirtækja og einskorðar sig ekki
við einn geira í fjárfestingum sínum. Við
skoðum helst tækifæri á sviði upplýsinga-
tækni í víðum skilningi, ýmiss konar miðl-
unar, orkutækni og líftækni, en til greina
kemur að fjárfesta í hvers konar rekstri,“
segir Ásta.
Hún útskýrir að Brú II er ætlað að
fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum sem
geta nýtt fjármagnið til
aukins vaxtar, til dæmis
þegar stefnan er tekin á
nýja markaði. Sjóðurinn
hyggst fjárfesta við upp-
haf hraðvaxtarskeiðs og
selja síðan hlut sinn þegar
vaxtarskeiðinu lýkur. Sjóð-
urinn fjárfestir bæði hér
heima fyrir og erlendis,
því slíkt getur aukið möguleika annarra fjár-
festinga sjóðsins til vaxtar.
„Með Brú II gefst íslenskum fagfjárfestum
gott tækifæri til að taka þátt í nýsköpun en
jafnframt eiga von á góðri ávöxtun,“ segir
Ásta að lokum.
BRÚ - VENTURE CAPITAL:
Leitað að næsta Marel eða Össuri
„Með Brú II gefst
íslenskum fagfjárfestum
gott tækifæri til að taka
þátt í nýsköpun en jafn-
framt eiga von á góðri
ávöxtun.“
Ásta Þórarinsdóttir, fjárfestingastjóri hjá Brú, leitar daglega að nýjum fjárfestingatækifærum.