Frjáls verslun - 01.05.2007, Qupperneq 207
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 207
Þegar er farið að selja íbúðir á efstu hæðunum í öðrum áfanga
verksins og munu þær kosta allt að 230 milljónum króna. Íbúðirnar
í áföngunum þremur verða 250 samtals og munu rúma um 800
íbúa. Þær eru allar mjög rúmgóðar og bjartar og eru bílageymslur
undir húsunum.
„Auk húsanna verða margir fallegir inngarðar, stígar og fleira,
sem mun gera Skuggahverfið að afar heillandi stað,
enda er um frábæra staðsetningu að ræða,“ segir
Harpa.
Þjónusta við fyrirtæki og sveitarfélög „Sveitar-
félög hafa í vaxandi mæli séð hag sinn í því að
leita til okkar með heildarskipulagningu og upp-
byggingu einstakra skipulagssvæða í stað þess að
selja þau í hlutum til margra framkvæmdafélaga,“
segir hún. „Húsnæðisþarfir fyrirtækja taka einnig
stöðugum breytingum og sífellt fleiri fyrirtæki
eru farin að leita til okkar með lausnir á sínum
húsnæðismálum. Í slíkum tilfellum byrjum við á því að leita að
heppilegri staðsetningu, skipuleggjum svæðið og byggjum. Oft
hafa líka fyrirtæki yfir lóð að ráða og fá okkur til að annast þróun
og skipulag á svæðinu. Hvort sem fyrirtækið vill eiga eða leigja
húsnæðið getum við séð um byggingu og fjármögnun á verkefn-
inu,“ segir Harpa að lokum.
Þyrping er framsækið þróunarfélag á sviði skipulagsmála og mannvirkjagerðar sem vinnur faglega að þróun og uppbygg-ingu einstakra svæða.
„Þyrping er ekki hefðbundið fasteignafélag eins og margir halda,
heldur þróum við svæði í heild sinni, komum þeim í gegnum
skipulagsvinnu, byggjum þau upp og seljum þau síðan,“ segir Harpa
Þorláksdóttir, markaðs- og sölustjóri Þyrpingar, en hún hefur starfað
hjá Þyrpingu síðan um áramót, var áður forstöðumaður kynningar- og
markaðsmála hjá Eimskip. Þyrping er í eigu Fasteignafélagsins Stoða
hf. og Baugs Group hf. og var stofnað árið 2002. Fyrirtækið hefur
tengst helstu nýsköpunarverkefnum á sviði skipulags- og bygginga-
mála á undanförnum árum, en um þessar mundir er félagið með á
sinni könnu verkefni sem spannar 50 þúsund fermetra af íbúðarhús-
næði og 20 þúsund fermetra af atvinnuhúsnæði. Auk þess er Akraland,
dótturfélag Þyrpingar, með 50 þúsund fermetra af íbúðar- og atvinnu-
húsnæði í Akralandi í Garðabæ í samvinnu við Atafl.
Meðal núverandi verkefna Þyrpingar má nefna Borgartún 26 og
Skuggahverfið í Reykjavík.
Borgartún 26 „Í Borgartúni 26 hefur nú risið
glæsilegt skrifstofu- og þjónustuhúsnæði, sérhannað
með þarfir nútíma fyrirtækja í huga. Útsýnið úr
12.000 fermetra húsinu er frábært og þegar eru
ýmis fyrirtæki farin að koma sér fyrir í rúmgóðum
skrifstofum þess,“ segir Harpa.
Á jarðhæð hússins er gert ráð fyrir verslun og alls
verða bílastæðin 345, bæði í bílageymslu undir hús-
inu auk bílastæða við bygginguna.
Skuggahverfið „Skugginn er verkefni sem Þyrping hefur unnið að
síðan árið 1998. Fyrsta áfanga er þegar lokið og vinnum við nú að
öðrum áfanga,“ segir Harpa.
Þegar þessu metnaðarfullu verkefni lýkur árið 2009 er gert ráð fyrir
að átján íbúðablokkir hafi risið á eignarlóð fyrirtækisins, sem markast
af Skúlagötu, Frakkastíg og Lindargötu.
ÞYRPING:
Stórglæsileg
háhýsi rísa í
Skuggahverfinu
„Þyrping er ekki hefð-
bundið fasteignafélag
eins og margir halda,
heldur þróum við svæði í
heild sinni, komum þeim
í gegnum skipulagsvinnu,
byggjum þau upp og
seljum þau síðan.“
Harpa Þorláksdóttir, markaðs- og sölustjóri Þyrpingar, segir
fyrirtækið vera framsækið þróunarfélag á sviði skipulagsmála
og mannvirkjagerðar sem vinnur faglega að þróun og upp-
byggingu einstakra svæða.
K
Y
N
N
IN
G