Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 172
172 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Árangur á öllum sviðum eru einkunnar-orð þekkingarfyrirtækisins Capacent sem leggur megináherslu á að nýta
þekkingu til að bæta árangur viðskiptavin-
anna og skapa þannig aukin verðmæti. Rann-
sóknarsvið fyrirtækisins, Gallup, skipar afar
mikilvægan sess, en starfsmenn þar aðstoða
stjórnendur við að taka ákvarðanir sem byggja
á traustum upplýsingum úr faglegum rann-
sóknum. Meðal þeirra rannsókna sem Capa-
cent Gallup gerir eru ímyndarmælingar, mark-
hópagreiningar, vinnustaðagreiningar og þjón-
usturannsóknir, auk rannsókna fyrir opinbera
stjórnsýslu, bæjar- og sveitarfélög.
„Rannsóknaraðferðir eru að breytast mikið
vegna breyttrar og bættrar tækni og auðvelt er
að safna miklu magni upplýsinga á einfaldan
hátt á netinu en það eykur enn frekar mik-
ilvægi þess að huga að áreiðanleika upplýs-
inganna,“ segir Guðbjörg Andrea Jónsdóttir,
rannsóknarstjóri Capacent Gallup. Guð-
björg, sem er með doktorspróf frá London
School of Economics í félagslegri sálfræði
með áherslu á aðferðafræði, hefur starfað hjá
Capacent á þriðja ár, en starfaði áður sem for-
stöðumaður þróunarsviðs í Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur.
Bættar fjölmiðlarannsóknir
Guðbjörg útskýrir að í haust mun Gallup
hefja rannsóknir á fjölmiðlanotkun lands-
manna, þar sem sérvalið úrtak þjóðarinnar
mun bera á sér lítið tæki sem nemur hvaða
stöð horft er á í sjónvarpinu og hvaða útvarps-
stöð er hlustað á í hvert sinn.
„Hugsunin er sú að við veljum fjölskyldur
með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Þannig
tryggjum við að þær séu úr öllum geirum
þjóðfélagsins. Allir meðlimir fjölskyldunnar
bera síðan tækið meðan þeir eru vakandi,“
segir Guðbjörg. „Kostirnir eru ótvíræðir.
Við getum nú mælt nákvæmlega hvenær og
hversu lengi fólk horfir á hverja stöð fyrir
sig og þurfum ekki lengur að reiða okkur á
minni fólks. Þetta gefur því mun áreiðanlegri
rannsóknarniðurstöður.“
Áhersla lögð á áreiðanlegar upplýsingar
„Internetið hefur gert það að verkum að
næstum hver sem er getur sett upp skoð-
anakönnun á heima- eða bloggsíðu sinni,
þar sem einhverri spurningu er varpað fram
og fólk getur svo svarað. Hins vegar átta sig
ekki allir á að niðurstöður slíkra kannana eru
lítt marktækar, því að allur gangur er á hver
svarar spurningunni og sumir geta jafnvel
svarað mörgum sinnum,“ segir Guðbjörg.
Því er mikilvægt að staðið sé faglega að
rannsóknum, líkt og Capacent Gallup gerir,
en fyrirtækið er aðili að Gallup International
og vinnur eftir viðurkenndum gæðastöðlum
þeirra.
Capacent Gallup hefur byggt upp svokall-
aðan netpanel til þess að einstaklingar, fyrir-
tæki og stofnanir geti á skömmum tíma
fengið greinargóðar og áreiðanlegar upplýs-
ingar um stöðu mála á markaði. Panellinn
samanstendur af um 10.000 einstaklingum
sem valdir hafa verið með tilviljunaraðferð úr
þjóðskrá og hafa samþykkt að svara netkönn-
unum. Á þennan hátt getur Capacent Gallup
tekið púlsinn á samfélaginu á árangursríkari
og fljótari hátt en ella og þannig komið til
móts við sífellt auknar kröfur um hraða og
áreiðanlega upplýsingagjöf.
CAPACENT:
Miklar framfarir
í rannsóknartækni
Guðbjörg Andrea
Jónsdóttir, rannsóknar-
stjóri Capacent Gallup.
ÁRANGUR Á ÖLLUM SVIÐUM
„Rannsóknaraðferðir eru
að breytast mikið vegna
breyttrar og bættrar tækni,
sem aftur skilar sér í mun
áreiðanlegri niðurstöðum.“