Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 194
194 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Kynnisferðir ehf. hafa verið starfræktar frá árinu 1968 og hafa allar götur
síðan verið í fararbroddi þeirra
sem skipuleggja dagsferðir frá
Reykjavík fyrir erlenda ferða-
menn. Kynnisferðir skiptu um
eigendur í mars síðastliðnum
þegar eignarhaldsfélagið Reyni-
melur ehf. keypti hlut FL Group
í félaginu, en hópferðafyrirtækin
SBA-Norðurleið og Hópbílar
fara fyrir hópi nýju fjárfestanna.
Velta Kynnisferða nam 1,5 millj-
örðum króna á síðasta ári.
Framkvæmdastjóraskipti urðu
hjá Kynnisferðum í maí og heitir
nýr framkvæmdastjóri Kolbrún
Edda Gísladóttir. Kolbrún er 28
ára, fædd og uppalin í Reykjavík,
en býr nú í Kópavogi. Hún er
með BSc.-gráðu í vörustjórnun
frá Tækniskóla Íslands og er að
ljúka meistaranámi í stjórnun við
Háskólann á Bifröst.
Eftir útskrift úr Tækniskól-
anum í lok árs 2001 hóf Kolbrún
störf hjá Olíufélaginu hf. og flutti
sig yfir til stoðtækjaframleiðand-
ans Össurar árið 2006.
Ók hópferðabílum um tíma
Kynni Kolbrúnar af ferðaþjón-
ustu byrjuðu þegar hún ók hóp-
ferðabílum í sumarleyfum og með
skóla. Hún er í sambúð með
Jóni Halldóri Guðmundssyni,
viðskiptalögfræðingi, og eiga þau
samtals 3 dætur.
Kolbrún segir að Kynnis-
ferðir muni starfa undir sama
nafni áfram, en félagið er fyrst og
fremst ferðaskrifstofa sem einnig
starfrækir um 70 hópferðabíla af
ýmsum stærðum og gerðum.
„Ferðaþjónustan er spenn-
andi og skemmtilegur vettvangur.
Það er ákaflega gefandi að aka
ferðamönnum vítt og breitt um
landið, einkum og sér í lagi þar
sem allir eru afslappaðir og í fríi.
Markmið okkar með starfseminni
er að gera gott fyrirtæki enn betra
og að efla ferðaskrifstofuna enn
frekar,“ segir hún.
Vaxandi umsvif Starfsmenn
Kynnisferða eru um 180. Auk
dagsferða með erlenda ferðamenn
standa Kynnisferðir fyrir hálendis-
ferðum að sumarlagi og hópferða-
akstur fyrir stóra og smáa hópa er
líka vaxandi hluti af starfseminni.
Kynnisferðir starfrækja gisti- og
veitingaþjónustu í Húsadal í Þórs-
mörk og árið 2004 tók félagið við
rekstri Umferðarmiðstöðvarinnar
á BSÍ og flutti þangað starfsemi
sína sem áður var á Hótel Loft-
leiðum. Allar dagsferðir félagsins
hefjast þar, sem og akstur Flugrút-
unnar og sérleyfisbílanna.
Nýjasta viðleitni Kynnis-
ferða til að auka þjónustu við
ferðamenn að sögn Kolbrúnar
er Gallery Kynnisferðir, en það
eru verslanir sem staðsettar eru
á Hótel Nordicu, Hótel Loft-
leiðum og Hótel Sögu. „Þar er til
sölu íslenskur hágæðavarningur
og hönnun; bæði fatnaður og
skartgripir. Auk þess eru seldar
dagsferðir og miðar í Flugrútuna,
ásamt almennri upplýsingagjöf
til ferðamanna. Hver hönnuður
hefur sinn sérstaka og ólíka stíl
og er það leiðarljós verslananna
að bjóða fram íslenskar vörur í
hæsta gæðaflokki,“ segir Kolbrún
að síðustu.
Kolbrún Edda
Gísladóttir er nýr
framkvæmdastjóri
Kynnisferða ehf.
Kynnisferðir munu starfa undir sama
nafni áfram, en félagið er fyrst og
fremst ferðaskrifstofa sem einnig
starfrækir um 70 hópferðabíla af
ýmsum stærðum og gerðum.
Viljum efla fyrirtækið
og gera gott betra
KYNNISFERÐIR:
www.re.is
DAGSFERÐIR FRÁ
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
– Dagsferðir um nágrenni Reykjavíkur alla daga
vikunnar frá BSÍ. Gullfoss, Geysir, Þingvellir,
Borgarfjörður og Snæfellsnes eru meðal áfangastaða.
FLUGRÚTAN/FLYBUS
– Ferðir til og frá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
SÉRLEYFISFERÐIR
UM SUÐURNES
– Akstur áætlunarbifreiða um Suðurnes.
HOP ON – HOP OFF
– Skemmtileg og fræðandi skoðunarferð
um Reykjavík í tveggja hæða strætisvagni.
SÉRLEIÐIR KYNNISFERÐA
– Sérferðir til allra helstu náttúruperlna landsins.
RÚTULEIGA
– 8-70 sæta rútur.
ÞÓRSMÖRK/HÚSADALUR
– Daglegar ferðir (1. júní – 9. september).
Hópferðir eftir pöntunum.
FYRIRTÆKJALAUSNIR
– Fyrirtækjasamningar Kynnisferða.
GALLERY KYNNISFERÐIR
– Íslensk hönnun: Skartgripir, fatnaður
og gjafavara. Hótel Nordica, Hótel Loftleiðir
og Radisson SAS Hótel Saga.
Kynnisferðir
Alltaf á ferðinni!