Frjáls verslun - 01.05.2007, Síða 204
204 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Smáralind • sími 5288800 • www.drangey.is
Léttustu ferðatöskurnar
skór vandaðir og mjúkir
- ekki bara töskur
Drangey býður þér úrvals vöru
og persónulega þjónustu. Komdu – láttu heillast
skart
og skartgripaskrín
- mikið úrval
®
Það krefst útsjónarsemi að reka fyrirtæki sem er orðið jafngam-alt og Drangey er,“ segir María Maríusdóttir, eigandi Drang-eyjar í Smáralind. „En ég tel að þetta hafi tekist hjá mér, því
hingað koma ítrekað þrjár kynslóðir kvenna og allar fara kannski með
tösku út úr versluninni.“
Vart þarf að kynna Drangey fyrir landsmönnum, enda er verslunin
að góðu kunn. Hún var sett á fót árið 1934 en María keypti hana
fyrir 12 árum. Hún segir leyndarmálið að baki velgengni verslunar-
innar felist í því að hún fylgist sjálf vel með eftirspurn og þörfum
viðskiptavinanna.
„Og það er einfalt í sjálfu sér – það er að vera reglulega í búðinni.
Það er gaman að sjá viðskiptatryggðina sem blasir stundum við þegar
viðskiptavinurinn er með tösku, hanska og seðlaveski frá mér og er
að leita sér að leðurjakka! Drangey er sannkölluð sérvöruverslun sem
hefur staðið af sér samkeppni frá stóru verslunarkeðjunum. Töskur
eru ekki bara tískubólur, þó það sé nú einnig skemmtileg hlið þeirra,
heldur eru þarfirnar afar misjafnar bæði hjá körlum og konum.
Þörfin fyrir úrval að herra- og dömuseðlaveskjum er mikil og þar
ríkir mikil sérviska hjá mörgum. Ég er því með fingur á púlsinum
alla daga,“ útskýrir hún.
Hún bætir við að Smáralindin sé góður vettvangur fyrir rekstur
Drangeyjar, því mikil breidd er í mannlífsflórunni þar. „Hér blandar
fólk saman erindum og ánægju sem húsið reynir að sinna eftir bestu
getu. Smáralind er sérstaklega björt og aðgengileg verslunarmiðstöð
og þar er gott að vera,“ segir María.
Nýtt blómaskeið hafið í versluninni „Mér finnst Drangey vera
komin á enn eitt blómaskeiðið, ég finn það bæði á rekstrartölunum
og fjölda viðskiptavina,“ segir María.
Drangey hefur alla tíð sérhæft sig í töskum, seðlaveskjum og
hönskum, en María hefur bætt við vöruúrvalið sem hefur aftur skilað
sér í aukinni ánægju viðskiptavinanna.
„Til dæmis hóf ég að selja Titan ferðatöskur frá Þýskalandi fyrir
ári síðan. Í kjölfar aukinna ferðalaga og möguleika á lægri fargjöldum
fylgja hertari reglur um farangur. Titan ferðatöskurnar eru afar léttar
og sterkar og unnu til úrslita árið 2004 í neytendasamkeppni í Þýska-
landi fyrir styrkleika og hversu léttar þær eru.“
Auk þess má nú finna leður- og loðyfirhafnir frá virtum framleið-
endum í Frakklandi og Danmörku, til viðbótar við skó og skart.
„Aðalviðskiptavinir mínir eru konur á öllum aldri og ég hef ein-
staka ánægju af því að brydda upp á nýjungum fyrir konurnar mínar
með fallegu skarti, skóm, samkvæmistöskum og ýmsu smálegu til
að skreyta sig með,“ segir María og hlær. „Hollenska skartið frá
MANOUK prýðir nú margar konur og er sannkallað skart sem tekið
er eftir,“ segir hún að lokum.
Allar vörurnar í Drangey eru sérinnfluttar, aðallega frá Ítalíu,
Danmörku, Frakklandi og Hollandi. María sækir reglulega sýningar
erlendis til að fylgjast með straumum og stefnum, sem þýðir að vöru-
rnar eru yfirleitt ekki til annars staðar og vöruupplag takmarkað.
www.drangey.is
DRANGEY:
Breitt vöruúrval
„Hingað koma
ítrekað þrjár kyn-
slóðir kvenna og
allar fara kannski
með tösku út úr
versluninni.“
María Maríusdóttir, eigandi Drangeyjar í Smáralind, leggur mikið upp úr ánægju viðskiptavina sinna.