Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 168
168 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Umsvif JKE-Design hafa aukist jafnt og þétt undanfarin tvö ár og sölu-aukning og velta farið fram úr björt-
ustu vonum. Á stefnuskránni er að opna
nýja verslun á Amager í Kaupmannahöfn
í ár og verslun í Glostrup á næsta ári. „Við
þessar framkvæmdir njótum við fulls stuðn-
ings hjá BYR, viðskiptabanka okkar,“ segir
Edda Hrönn Steingrímsdóttir, fjármálastjóri
JKE-Design, „og ástæða til bjartsýni á fram-
tíð JKE-Design á Íslandi og í Kaupmanna-
höfn.“
JKE-Design var stofnað í september 2004
af Svandísi E. Halldórsdóttur, sem er fram-
kvæmdastjóri JKE-Design, og Amalíu Gunn-
arsdóttur sem féll frá skömmu eftir að versl-
unin í Mörkinni var opnuð í febrúar 2005.
„Ég hóf störf hjá JKE-Design ehf. í júlí
2005 og þá við almenn bókhaldsstörf. Starfið
hefur aukist og nú gegni ég hlutverkum fjár-
málastjóra, starfsmannastjóra, launafulltrúa
og staðgengils framkvæmdastjóra í fjarveru
Svandísar sem er mikið í Kaupmannahöfn
í tengslum við JKE-Design verslunina þar,“
segir Edda Hrönn.
„Í september 2006 var
opnað dótturfyrirtæki JKE-
Design á Gl. Kongevej 88 í
Fredriksberg. Ég hef fengið
að taka þátt í uppbygging-
unni frá byrjun, frá því
sú hugmynd kviknaði að
kaupa þarna gamla JKE-
Design verslun. Hún hafði
starfað lengi og nauðsyn-
legt var að gera hana upp frá grunni. Ganga
þurfti frá ýmsum samningsatriðum við JKE-
Design A/S verksmiðjuna í Álaborg, samn-
ingum við iðnaðarmenn, ráða starfsfólk í
verslunina og bókhaldsþjónustu og huga að
mörg öðru áður en hægt var að opna hina
uppgerðu og glæsilegu verslun.
Amager og Glostrup næst Framkvæmdum
í Danmörku er engan veginn lokið. Í kaup-
samningnum í Kaupmannahöfn er leyfi til
að opna fleiri JKE-Design verslanir á Stór-
Kaupmannahafnar-
svæðinu. Stefnt er
að því að opna nýja
verslun í ár á Amager.
Þar er uppbygging
mikil og full þörf á
JKE-Design verslun
á svæðinu. Þá er
ráðgert að opna aðra
verslun í Glostrup á
næsta ári. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist
jafnt og þétt sem og sala og velta, en hvort
tveggja hefur farið fram úr björtustu vonum.
Edda Hrönn segir að JKE-Design eigi sam-
vinnu við nokkra öfluga og góða verktaka en
auðvitað vilji fyrirtækið þjóna einstakling-
unum eins vel og frekast sé kostur.
JKE-DESIGN:
JKE-Design var aftur í hópi
fyrirmyndarfyrirtækja í ár, sam-
kvæmt árlegri könnun VR,
enda starfsfólkið gott og allir
hafa lagt sitt af mörkum til að
fyrirtækið dafni sem best.
JKE-Design verslunum
fjölgar í Danmörku
Edda Hrönn Steingrímsdóttir fjármálastjóri.
Nýjustu straumar í innréttingum
Djarfir litir eru aðeins að færast í aukana,
t.d. rauður litur og einnig grár, en hnota
og háglans hafa verið vinsæl undanfarið,
að sögn Eddu Hrannar. Þess ber þó að
geta að hægt er að velja úr yfir 2000
litum í JKE-Design innréttingunum.
Granít borðplötur eru alltaf vinsælar og
6 cm þykkar viðarborðplötur úr Wenge
og Zebrano eru að sækja mjög á.