Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 225
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 225
Vinnuumhverfi ökumanns Vel fer um ökumann í fjölstillanlegu sæti
móti stýrishjóli með hallastillingu. Stjórntæki eru öll við höndina,
m.a. svonefnt „aðgerðastýri“ sem felur í sér að stjórna má útvarpi o.fl.
með hnöppum á stýrishjóli. Skriðstillir (Cruise Control) er í fingur-
fjarlægð frá stýrishjóli. Tölvustýrð miðstöð með loftfrískun (AC).
Upplýsingatölva er alltaf til þæginda.
Rými Dágott rými fyrir ökumann og framsætisfarþega. Vel viðunandi
fyrir tvo í aftursæti, þó í þrengra lagi séu þeir hávaxnir því stutt er
í framsætin. Farangursrými er heldur ekki rétt stórt séu aftursætin í
notkun, en þokkalegt ef hægt er að fella fram þó ekki sé nema 40%
af aftursætinu. Með bæði aftursætin felld eykst farangursrýmið að því
skapi. Smáhlutahirslur og glasahöldur hér og hvar.
Aksturseiginleikar Eins og vænta má er þetta lipur bíll og liðlegur.
Hann fer prýðilega á vegi enda er hjólahaf furðu mikið, eða 2500 mm.
Hjólahaf á Toyota RAV4, svo nefndur sé þekktur jepplingur, er 2560
mm. SX4 er 8 sm styttri en RAV4, 2 sm breiðari og 5 sm lægri.
Upptaktur með sjálfskiptingu er dágóður upp í viðunandi öku-
hraða, en millihröðun á efri hraðasviðum er ekkert sérstök. Brekku-
vinnsla er ekki til að setja út á.
Sætastaða í bílnum er tiltölulega há þannig að þægilegt er að
setjast inn í bílinn og stíga út úr honum aftur.
Kostir/ókostir Kostir við Suzuki SX4 eru lipurð hans, fjölhæfni
og góðir aksturseiginleikar, ásamt þægilegu umhverfi ökumanns
og framsætisfarþega. Aldrifið og góð veghæð geta komið sér vel við
íslenskar aðstæður. Frágangur er ágætlega snotur. Til ókosta má telja
að frekar er þröngt um hné í aftursæti miðað við að þetta er ekki
svo lítill bíll, svo og að tveggja lítra vélin með sjálfskiptingu virðist
vera frekar þorstlát. Samkvæmt upplýsingatölvu bílsins fór hann með
11 l pr. 100 km í tæplega 300 km reynsluakstri. Einkum var ekið í
Mosfellsbæ og grannhéruðum, auk einnar ferðar austur að Ölfusá
(Selfossi, Árborg).
Verð/virði Prófuð var dýrasta útfærsla af Suzuki SX4. Hún kostar skv.
verðlista í byrjun maí kr. 2.390.000. Þetta er prýðilega vel útfærður
og vel búinn bíll. Ódýrasta útgáfa er með 1,6 l vél og 5 gíra hand-
skiptingu, kostar kr. 2.140.000, jafnvel enn betur búinn bíll. Fyrir
þann sem er ekki orðinn leiður á handskiptingu væri það sennilega
ágætur kostur.
Snoturt útlit en sker sig engan veginn úr fjöldanum. Miðað við flatarmál („botnskugga“, eins og stundum er sagt) hefði mátt fá meiri rýmis-
nýtingu út úr yfirbyggingunni – en þá hefði útlitið líka orðið annað.
Mælaborðið er snoturt og flest nær hendi sem nota þarf. Útvarpi og
miðstöð stjórnað úr aðgerðastýri. Enginn pjattspegill í skyggni fyrir
framsætisfarþegann – sem er þó mun líklegri til að þurfa á honum
að halda en ökumaðurinn!