Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 45
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 45
lyfjafyrirtæki
Guðbjörg Alfreðsdóttir, framkvæmdastjóri vistor.
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, aðstoðarforstjóri actavis Group.
Guðrún S. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri gæðasviðs actavis Group.
GUÐBJÖRG EDDA EGGERTSDÓTTIR,
aðstoðarforstjóri Actavis Group.
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið í kreppunni?
Í hvaða úrbótum er það að vinna?
Við höfum dregið úr kostnaði eins og hægt er, m.a. með því að
frysta laun, sýna aðhald í innkaupum, draga úr ferðalögum og
nota síma- og fjarfundi meira en áður.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr niðursveiflunni fyrir þitt
fyrirtæki?
Við höfum sýnt að unnt er að beita aðhaldi án þess að það komi
verulega niður á rekstri og sölu fyrirtækisins.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga ríki og bankar að
reka einkafyrirtækin sem þau taka yfir?
Sem styst – það verður þó að vanda vel til einkavæðingar, læra
af reynslunni og bíða með sölu þar til markaðurinn er farinn að
jafna sig.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta atvinnulífið við?
Stærsta málið er að lækka vexti og að gjaldmiðillinn styrkist og
verði stöðugur á ný svo unnt verði að aflétta gjaldeyris-
höftum.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í stjórnun?
Hreinskiptin samskipti – hlusta á það sem aðrir hafa að segja –
og hröð en vönduð ákvarðanataka.
Framtíðin í sex orðum?
Byggjum á traustum grunni, ekki lofti.
Guðbjörg Edda á sæti í stjórn Auðar Capital hf, er varamaður í
stjórn Útflutningsráðs, auk stjórnarsetu í allmörgum dótturfélögum
Actavis Group hf.
Guðbjörg
Alfreðsdóttir,
framkvæmdastjóri
Vistor.
tölvubúnaður
oG þjónusta
Valgerður H. Skúladóttir, forstjóri sensa
Valgerður H. Skúladóttir,
forstjóri Sensa
Guðrún S.
Eyjólfsdóttir,
framkvæmdastjóri
gæðasviðs Actavis Group.