Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
K
Y
N
N
IN
G
Alcan á Íslandi hf.-ISAL
hlaut nýlega viðurkenningu
frá VÍS fyrir góðan árangur
í örygggismálum. Hvernig
kom það til og hvaða merk-
ingu hefur slík viðurkenning
fyrir starfsfólk Alcan?
„VÍS, sem eru okkar tryggj-
endur, veittu því athygli að við
höfðum náð framúrskarandi
árangri í öryggismálum; með
bestan árangur álfyrirtækja í
Evrópu þriðja árið í röð. VÍS
hefur lagt mikið af mörkum í
baráttunni fyrir bættu öryggi og
var mjög ánægjulegt að hljóta
þessa viðurkenningu. Við-
urkenningin er okkur hvatning
til að sofna ekki á verðinum.“
Hvað er helst á döfinni hjá
Alcan um þessar mundir?
„Það verða mikil tímamót hjá
okkur 1. júlí en þá verða liðin
40 ár frá því að álframleiðsla
hófst á Íslandi. Af tilefninu
ætlum við að hafa opinn dag og
öllum almenningi verður boðið
að koma í heimsókn og skoða
álverið. Hér verða fjölmörg
skemmtiatriði fyrir börn, boðið
verður upp á kökur og pylsur
og fleira. Annars er mesta áskor-
unin í dag að halda rekstrinum
í góðu horfi við mjög erfiðar
markaðsaðstæður. Hvað fram-
tíðina varðar erum við að und-
irbúa af fullum krafti að auka
afköst verksmiðjunnar með því
að hækka strauminn í núverandi
kerskálum, sem kallar á umtals-
verða endurnýjun á búnaði.“
Hvernig stuðlar Alcan að
félagslegri og umhverfislegri
sjálfbærni?
„Þetta er margþætt verkefni,
eins og spurningin gefur til
kynna. Við reynum að hlúa vel
að starfsfólki okkar og teljum
að hár meðalstarfsaldur og lítil
starfsmannavelta gefi til kynna
að fólk sé ánægt með að vinna
hér. Sterkasta dæmið um fram-
lag okkar í umhverfismálum er
að við höfum dregið úr losun
gróðurhúsalofttegunda um
helming frá 1990 þótt fram-
leiðslan hafi tvöfaldast á sama
tíma. Svo má nefna að við
hlúum að nýsköpun, því hér
varð til fyrirtæki sem smíðar
vélbúnað í álver og selur núna
framleiðslu sína um allan heim.“
Hvaða ráð gefurðu konum
sem stefna á framabraut í
heimi stjórnunar í viðskipta-
heiminum?
„Ég tel að lykillinn að árangri
fyrir bæði konur og karla
sé hæfileg blanda af sjálfs-
trausti og auðmýkt. Ég held
að flestum farnist vel sem hafa
báða þessa eiginleika í ríkum
mæli og án þess að annar sé
yfirgnæfandi.“
Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi.
FJöRUTÍU ÁR SÍÐAN ÁLFRAMLEIÐSLA HÓFST Á ÍSLANDI
Alcan á Íslandi
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
I S A L – S T R A U M S V Í K
Álverið í Straumsvík notar vatn til að kæla rafspenna, en um þá fer allt rafmagn
sem álverið notar við framleiðslu sína. Kælivatnið kemur úr Kaldá, vatnsmikilli
á sem rennur til sjávar undir hrauninu við verksmiðjuna.
Enda þótt Ísland sé auðugt af hreinu vatni er mikilvægt að umgangast þá
auðlind af sömu virðingu og aðrar gjafir landsins. Vatnið sem við notum til
kælingar á rafspennum fer jafnhreint frá okkur og það kemur til okkar. Þess
vegna má nota það aftur á Hvaleyrarvelli, golfvelli Keilis, sem þarf mikið vatn
til vökvunar.
Álverið opnaði á dögunum vatnslögn frá Straumsvík að golfvellinum, þar sem
vatnið okkar safnast í þessa fallegu tjörn. Úr henni er vatnið leitt um fullkomið
vökvunarkerfi og úðað yfi r fagurgrænar fl atir og teiga þessa skemmtilega vallar.
Þannig er verðmæt auðlind nýtt ekki einu sinni, heldur tvisvar.
Til hamingju Keilir og takk fyrir ánægjulegt samstarf!
„Annars er mesta
áskorunin í dag að
halda rekstrinum í
góðu horfi við mjög
erfiðar markaðs-
aðstæður.“