Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 113
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 113
k r A f t M i k i l A t h A f n A k o n A
Pizza Hut er gamalgróið fyrirtæki í veitingarekstri. Nú- verandi eigendur eru hjónin Þórdís Lóa Þórhallsdóttir og Pétur Jónsson: „Við keyptum Pizza Hut af Gaumi, í septem-
ber 2003, en Gaumur hafði þá rekið fyrirtækið í nokkur ár. Í eigu
Gaums hafði stöðum fjölgað og orðið áherslubreyting. Þegar við
tókum við ákváðum við strax að fækka stöðunum og fara til baka
og leggja áherslu á Pizza Hut sem fjölskylduvænan veitingastað með
fullri þjónustu, tókum út heimsendingarþjónustuna
og sölu út af veitingastaðnum að mestu. Fólk getur
pantað hjá okkur og sótt, en engin megináhersla er
lögð á slíka þjónustu. Núna rekum við þrjá Pizza
Hut staði hér á landi, á Nordica Hilton Hóteli,
Sprengisandi og Smáralind og sjö veitingastaði í
Finnlandi.“
Áður en Þórdís Lóa fór út í eigin rekstur
starfaði hún hjá Reykjavíkurborg og var stundaken-
nari við HÍ og KHÍ. „Ég var framkvæmdastjóri
á þjónustusviði Velferðarsviðs Reykjavíkur og sá um að framleiða
alla félagslega þjónustu. Stýrði framkvæmd heimaþjónustunnar,
hjúkrunarheimilum, heimilum fyrir fötluð börn, vistheimilum barna
og heimsendingu á mat. Var ábyrg fyrir öllu því sem sem sneri að
rekstrinum á þessum einingum og að veita þjónustuna, en svo var
annar framkvæmdastjóri sem stýrði greiningunni á því hverjir fengu
úthlutað. Þetta var viðamikið og skemmtilegt starf en ég var búin að
vera lengi í opinbera geiranum og vildi gjarna fá að ráða mér meira
sjálf og hafa þannig bein áhrif á árangur og verkefni.“
Vildum fara saman í fyrirtækjarekstur
Þórdís segir að það hafi alltaf verið ætlun sín að fara út í eigin
rekstur. „Við hjónin erum bæði viðskiptamenntuð og upphafið að
fyrirtækjarekstrinum kom þegar við lentum í ógöngum með gamalt
hús sem við keyptum. Ef við hefðum haft einhverja glóru í hausnum
hvað varðar húsbyggingar þá hefðum við átt að sjá að margt var í
ólagi í húsinu. Þegar við ætluðum síðan að láta taka húsnæðið út
komumst við að því að það var enginn hlutlaus
aðili hér á landi sem tekur út húsnæði svo við
fórum út í að stofna slíkt fyrirtæki en fyrirmyndin
var álíka fyrirtæki sem voru starfrækt í Skandi-
navíu. Ég hélt þó áfram minni vinnu hjá borginni
þannig að Pétur stóð að langmestu leyti í undirbú-
ningnum og rak fyrirtækið. Við sáum samt fljótt
að litlir sem engir stækkunarmöguleikar voru fyrir
hendi og fyrirtækið var of lítið fyrir okkur bæði og
fórum því að leita fyrir okkur að öðrum mögu-
leikum og vorum með í huga meðalstórt fyrirtæki. Í um það bil eitt
og hálft ár vorum við að að leita að hentugum tækifærum. Mörg voru
skoðuð í ýmsum geirum atvinnulífsins en við fundum ekkert sem
okkur líkaði fyrr en Pizza Hut kom upp í hendurnar á okkur.“
Þórdís Lóa er spurð hvort áhættan hafi ekki verið nokkur þar sem
mikil samkeppni ríkir á pizzumarkaðinum: „Vissulega var samkepp-
nin mikil og er enn. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að það var
á brattann að sækja og Pizza Hut reksturinn hafði verið erfiður í mörg
ár. Það sem fyrst verður að gera sér grein fyrir er að veitingabransinn
RekuR Pizza
Hut á Íslandi
og Finnlandi
texti: hilmar karlsson ● Myndir: geir ólafsson o. fl.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er kraftmikil athafnakona sem rekur Pizza Hut á Íslandi og sjö
Pizza Hut-staði í Finnlandi. Hún starfaði hjá reykjavíkurborg og var stundakennari við HÍ
og KKÍ áður en hún og eiginmaðurinn, Pétur Jónsson, skelltu sér út í viðskiptin árið 2003.
ÞórdÍs Lóa ÞórHaLLsdóttir, eigandi Pizza Hut:
stefnan sem við
lögðum upp með var
að gera Pizza hut
að fjölskylduvænum
veitingastað. Það
hefur gengið eftir.