Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 53
INGIBJÖRG
ÞÓRÐARDÓTTIR,
formaður Félags
fasteignasala.
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis
verið í kreppunni?
Í hvaða úrbótum er það að vinna?
Samdráttur hefur verið mikill í fast-
eignasölu frá því að fjármálakreppan hófst.
Nú er svo komið að ég hef neyðst til að
fækka starfsfólki. Aukið atvinnuleysi þýðir
auðvitað meiri samdrátt á öllum sviðum
þjóðfélagsins. Úrbætur eru ekki á mínu
færi varðandi fasteignamarkaðinn. Ég held
fyrirtækinu gangandi í þeirri trú að fast-
eignasala glæðist að nýju.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr nið-
ursveiflunni fyrir þitt fyrirtæki?
Því miður svara ég þessu neitandi. Nið-
ursveiflan hefur komið mjög illa niður á
fasteignasölum, fasteignaeigendum, bygg-
ingaverktökum, iðnaðarmönnum, svo og
öllum þeim sem hafa snertiflöt við mína
starfsgrein.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga
ríki og bankar að reka einkafyrirtækin
sem þau taka yfir?
Það er ekki gott að svara því, staða bank-
anna er ennþá óljós og framtíð þeirra
óskrifað blað. Hins vegar tel ég að fara
eigi að einkavæðingu ríkisfyrirtækja með
öðrum hætti en gert var. Eignarhald
þarf að vera dreift og skapa þarf réttláta
umgjörð við þá framkvæmd svo víðtæk
sátt ríki um framtíðarskipan einkavæð-
ingar.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta
atvinnulífið við?
Vaxtalækkun er algert skilyrði. Vaxtaokur,
verðtrygging og óstöðugt gengi íslensku
krónunnar er að sliga atvinnulífið ásamt
þungum álögum ríkisins. Það þarf að
styðja við atvinnuvegina og opna leiðir til
þess að rétta megi stöðu atvinnulífsins,
meðal annars með því að nýta þá fjármuni
sem til eru hér innanlands og á ég þar sér-
staklega við lífeyrissjóðina sem eru í eigu
landsmanna.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í
stjórnun?
Samvinna og heiðarleiki eru þau gildi sem
ég hef haft að leiðarljósi ásamt því að
treysta mínu starfsfólki til þess að inna
störf sín af hendi í þágu kaupenda og selj-
enda. Hins vegar ber ég sem löggiltur fast-
eignasali að sjálfsögðu alla faglega ábyrgð
samkvæmt lögum og siðareglum sem um
fasteignaviðskipti gilda.
Framtíðin í sex orðum?
Ísland og Íslendingar rísa upp aftur.
Ingibjörg er eigandi og framkvæmdastjóri
fasteignasölunnar Híbýlis ehf. Hún situr í
prófnefnd til löggildingar um fasteigna-, fyr-
irtækja- og skipasölu. Þá er hún formaður
KR-kvenna.
FASTEIGNASALA
Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala.
BÓKAÚTGÁFA
Hildur Hermóðsdóttir, eigandi Sölku.
Hildur
Hermóðsdóttir,
eigandi Sölku.