Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 126
126 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
kvikmyndir
s
agt er að Julie and Julia sé fyrsta
kvikmyndin sem á uppruna sinn
í bloggfærslum. Hvort sem það er
rétt eða ekki, þá er staðreyndin sú að
handritshöfundurinn og leikstjórinn
Nora Ephron nýtir sér blokkfærslur Julie
Powell, skrifstofustúlku sem tók til við að
matreiða 524 mataruppskriftir sem prýða
þekkta matreiðslubók, Mastering the Art of
French Cooking, eftir Juliu Child. Powell
kallaði bloggfærslurnar The Julie/Julia Pro-
ject. Hún tók eitt ár í matargerðinni og lýsti
reynslu sinni í bloggfærslum sínum sem
vöktu fljótt athygli og urðu mjög vinsælt efni
meðal bloggara, sérstaklega þeirra sem höfðu
áhuga á mat. Vinsældirnar voru það miklar
að Julie Powell bauðst til að gefa minningar
sínar út á bók, sem hún gerði og nefnist
bókin Julie & Julia: 365 Days, 524 Recipes
and 1 tiny apartment kitchen. Bókin kom út
2005 og seldist vel. Þegar hún var svo end-
urútgefin 2006 var nafni hennar breytt í Julie
& Juliet: My Year of Cooking Dangerously.
Til að bæta um betur nýtti Nora Ephron
sér einnig hluta af ævisögu Juliu Childs, My
Life in France, og gerist því Julie and Julia á
tveimur tímaskeiðum. Við fylgjumst með lífi
Julie Powell meðan hún er að rembast við
allar uppskriftirnar og viðbrögðum við þeim
og inn á milli er skipt til fortíðarinnar þegar
Julia Child dvaldi í Frakklandi á fimmta
áratug síðustu aldar. Þar sótti hún franska
kokkaskóla og vann að uppskriftunum í bók
sína á meðan eiginmaður hennar starfaði sem
diplómat á vegum bandarískra stjórnvalda.
Eiginmaðurinn, Paul, lenti síðan eins og
margir aðrir ágætir menn í að sæta rann-
sókn amerísku nefndarinnar undir stjórn
Josephs McCarthy og var ásakaður um að
vera kommúnisti.
leikkonur sem þekkjast
Það gat aldrei orðið af því að Julie Powell og
Julia Child hittust þar sem Powell er fædd
1973 en Child fæddist 1912 og lést í hárri
elli 2004. Það verður því spennandi að sjá
hvernig Ephron tekst að tengja þessar tvær
persónur og gerðir þeirra í eina heild. Hættan
er sú að myndin verði sundurlaus með stans-
lausum skiptingum milli fortíðar og nútíðar
en ef vel tekst til gæti Julie and Juliet verið
góð skemmtun. Ekki eiga leikkonurnar sem
túlka Julie og Juliu að skemma fyrir. Það er
sjálf Meryl Streep sem fer með hlutverk Juliu
Child og má búast við að leikur hennar sé
enn ein rós í hnappagat hennar ef eitthvað
kemst þar enn fyrir! Streep er með hvorki
meira né minna en fimmtán óskarstilnefn-
ingar á bakinu (tvisvar unnið) og hefur eng-
inn leikari fengið jafnmargar tilnefningar. Þá
hefur hún fengið tuttugu og þrjár Golden
Globe tilnefningar. Með mikla reynslu í að
túlka ólíkar persónur ætti það ekki að vefjast
fyrir Streep að túlka Child sem þótti sterkur
persónuleiki og var lengi með vinsælan sjón-
varpsþátt í Bandaríkjunum.
Amy Adams leikur Julie Powell. Hún
hefur ekki sömu reynslu og Meryl Streep
en hefur sótt í sig veðrið á síðustu árum.
Hún vakti fyrst athygli þegar hún lék aðal-
hlutverkið í Junebug (2005) og fékk ósk-
arstilnefningu fyrir leik sinn. Þá hafði hún
í nokkur ár verið að fóta sig áfram í litlum
kvikmyndahlutverkum og sjónvarpsseríum.
Adams staðfesti veru sína á meðal stjarnanna
í Hollywood í ævintýramyndinni Enchanted
þar sem útgeislun hennar var mikil og fékk
Julie powell varð fræg þegar
hún bloggaði daglega í eitt
ár um reynslu sína af að
matreiða 524 uppskriftir
eftir Juliu Child
julIe og julIa
texti:
HilMar karlsson
Julia Child (Meryl Streep) í góðum félagsskap í eldhúsinu. Julie Powell (Amy Adams) á efri myndinni.