Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
FJárMálaFyrirtæKi
Birna einarsDóTTir,
bankastjóri Íslandsbanka.
Hver hafa viðbrögð þíns fyrirtækis verið í kreppunni?
Í hvaða úrbótum er það að vinna?
Efnahagskreppan hefur haft veruleg áhrif á starfsemi okkar
eins og önnur fjármálafyrirtæki og í raun flest fyrirtæki
á Íslandi. Í kjölfar uppskiptingar nýja og gamla bankans
þurftum við að grípa til sársaukafullra uppsagna og sáum þar
á eftir mörgum góðum félögum. Síðan hefur megináhersla
verið lögð á að styrkja innviði bankans, auka hagræði og
virkja sem flesta starfsmenn í uppbyggingarstarfinu.
Hefur eitthvað jákvætt komið út úr niðursveiflunni fyrir
þitt fyrirtæki?
Starfsmenn bankans hafa sýnt mikið æðruleysi og þétt rað-
irnar við erfiðar aðstæður og lagt sig fram við að leysa mál
viðskiptavina bankans. Það kom mér þægilega á óvart að
sjá að starfsandinn í Íslandsbanka er í sögulegu hámarki,
nokkuð sem lýsir ótrúlegum baráttuanda okkar fólks.
Ríkisvæðingin er mikil. Hvað lengi eiga ríki og bankar
að reka einkafyrirtækin sem þau taka yfir?
Ég hef sagt að bankar eru ekki góðir eigendur rekstrarfélaga
og eiga að halda slíkum eignarhlutum í sem skemmstan
tíma. Lög um fjármálafyrirtæki setja bönkunum þröngar
skorður í þessum efnum þannig að þeir mega ekki vera í
óskyldum rekstri lengur en í 12–18 mánuði.
Hvað viltu sjá að verði gert til að rétta atvinnulífið við?
Það er grundvallaratriði fyrir fyrirtæki í landinu að vextir
haldi áfram að lækka en Íslandsbanki hefur leitt vaxtalækk-
unarferli bankanna frá því í janúar. Jafnframt er brýnt að
efnahagsreikningar bankanna líti dagsins ljós og að eign-
arhald þeirra liggi fyrir sem fyrst þannig að þeir geti sinnt
sínu hlutverki í uppbyggingarferlinu og haldið áfram að
þjóna atvinnulífi og heimilum.
Hvaða heilræði hafa reynst þér best í stjórnun?
Valur Valsson, fyrrverandi bankastjóri Íslandsbanka, kenndi
mér hvað innri samskipti skipta miklu máli í stóru fyrirtæki.
Þess vegna hef ég lagt mikla áherslu á að halda starfs-
mönnum bankans vel upplýstum, ekki einungis um ein-
stakar ákvarðanir heldur einnig um ýmsar vangaveltur mínar
og kallað eftir hugmyndum þeirra. Innlegg starfsmanna er
mjög verðmætt í allri ákvarðanatöku – ekki síst við erfiðar
aðstæður.
Framtíðin í sex orðum?
Óvissa og áskoranir – straumhvörf og tækifæri.
stefanía k.
karlsdóttir,
stjórnarmaður Nýja
Landsbankans.
salvör Jónsdóttir,
stjórnarmaður Nýja
Landsbankans.
Ása
richardsdóttir,
stjórnarmaður
Nýja Landsankans.
anna Bjarney
sigurðardóttir,
framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs
Landsbankans.