Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 130
fólk
130 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9
Hildur Erla
Björgvinsdóttir: „Með
skólanum fór ég að
vinna í fullu starfi í
versluninni Old Navy
sem er hluti af Gap-
veldinu og áður en ég
vissi af var ég orðin
verslunarstjóri.“
sævar Karl er þekkt tískuverslun í miðbæ Reykjavíkur sem verslar með kven- og karlfatnað frá þekktum
hönnuðum. Verslunin hefur lengi verið leið-
andi í sölu á gæðafatnaði. Framkvæmdastjóri
er Hildur Erla Björgvinsdóttir.
„Ég kom til starfa hjá Sævari Karli í
febrúar. Markaðsmálin hafa verið ofarlega
á baugi og við höfum verið að skoða allan
reksturinn. Breyttar aðstæður í þjóðfélag-
inu hafa gert það að verkum að minn tími
hefur mikið farið í að endursemja við okkar
erlendu birgja, sem eru þrjátíu og tveir.
Hefur það gengið mjög vel og við bjóðum
upp á fjölbreyttan tískufatnað frá mörgum
af þekktustu tískuhúsum heims. Einnig
höfum við verið að hugsa til framtíðarinnar.
Hvar ætlar Sævar Karl að staðsetja sig og
hvað þarf hann að vera og hef ég m.a. verið
að hlusta eftir hvað viðskiptavinum okkar
finnst.
Verslunin er mjög vel staðsett í Banka-
strætinu, besti staðurinn í bænum segi ég,
og að undanförnu hefur aukist að útlend-
ingar koma til okkar að versla og á enn
eftir að aukast þegar skemmtiferðaskipin
koma. Þar sem farþegar eru snemma á ferð-
inni höfum við frá júlíbyrjun opið frá kl.
9 á morgnana og í júní munum við opna
fyrr þá daga sem skipin koma snemma. Í
fyrra voru útlendingar um 15% af okkar
viðskiptavinum en eru komnir í um 25% í
dag. Maí var mjög góður hjá okkur og betri
en í fyrra og er ég er spennt fyrir sumrinu
og bjartsýn á að okkur takist að auka söluna
enn meir.“
Hildur starfaði sem sölu- og þjónustustjóri
hjá Nova ehf. áður en hún hóf störf hjá Sæv-
ari Karli og bar þar ábyrgð á uppbyggingu
verslana og þjónustuvers. Hildur bjó um
nokkurra ára skeið í Bandaríkjunum þar sem
hún var í námi en hún er með B.A. gráðu í
sálfræði frá Florida International University
og M.Sc. gráðu í stjórnun, með áherslu á
mannauðsstjórnun frá sama háskóla: „Með
skólanum fór ég að vinna í fullu starfi í versl-
uninni Old Navy sem er hluti af Gap-veldinu
og áður en ég vissi af var ég orðin verslunar-
stjóri.“
Lestur góðra bóka er ofarlega á baugi
þegar kemur að áhugamálum: „Ég les mikið
og hef fjölbreyttan smekk hvað lestur varðar
en fagurbókmenntir eru þó efst á blaði ásamt
því sem viðkemur menntun minni. Svo er
það stússið í kringum fjölskylduna en við
erum fimm. Sambýlismaður minn, Snorri
Steinsson, er viðskiptafræðingur og vinnur
hjá Landsbankanum og eigum við þrjár
stelpur. Eina ellefu mánaða, Helen Silfá, sem
við eigum saman. Snorri átti fyrir Tinnu
Rún, sem er að fara að fermast og ég átti fyrir
Soffíu Marju sem er sex ára.
Okkar staður úti á landi er í Súðavík þar
sem við eigum 80 ára gamalt hús sem við
höfum verið að gera upp og nú er sú vinna
að klárast. Þangað förum við alltaf þegar
tækifæri gefst og stundum í sjóstangaveiði
og ýmislegt fleira sem hægt er að gera þegar
óspillt náttúran er allt í kringum mann.“
HILDUR ERLA BJÖRGVINSDÓTTIR
framkvæmdastjóri Sævars Karls
nafn: Hildur erla Björgvinsdóttir.
fæðingarstaður: reykjavík, 19.
janúar 1973.
foreldrar: Björgvin Björgvinsson
og Kristín Marja Baldursdóttir.
maki: Snorri Steinsson.
Börn: tinna rún 13 ára, Soffía
Marja 6 ára og Helen Silfá, 11
mánaða.
menntun: B.a. gráða í sálfræði.
M.Sc. gráða í stjórnun með
áherslu á mannauðsstjórnun.