Frjáls verslun - 01.05.2009, Blaðsíða 15
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 9 15
Og kaupendur eru yfirleitt menn sem ekki
spyrja fyrst um verð heldur gæði. Bandaríska
viðskiptaritið Forbes hefur kjörið Koenigsegg
sem einn af tíu fallegustu bílum sögunnar.
„Við vorum afskaplega ánægð með þá
viðurkenningu,“ segir Halldóra.
Fæddur uppfinningamaður
Christian maður hennar er yfirhönnuður og
uppfinningamaður fyrirtækisins. Hann hefur
enga formlega tæknimenntun að baki en
„hefur tækniþekkinguna í sér“ segir Halldóra
og hlær.
„Þetta er meðfætt,“ segir hún. „Hann er
fæddur uppfinningamaður.“
Sjálf lagði hún stund á viðskiptafræði og
markaðsstjórn og sér um fjárreiður fyrirtæk-
isins, markaðsmál og starfsmannastjórn. Og
svarar fjölmiðlum.
Núna vinna 45 manns í föstum störfum
hjá Koenigsegg auk þess sem fimm sér-
fræðingar vinna sjálfstætt fyrir fyrirtækið.
Alls er þetta því 50 manna vinnustaður.
Núverandi eigandi Saab, General Motors, var
stærsti bílaframleiðandi heims. Koeningsegg
er á hinn bóginn með minnstu bílasmiðjum
þótt vörumerkið sé frægt um allar jarðir.
Það er sagt um Christian von Koenigsegg
að hann hafi allt frá æskuárum átt sér
draum um að búa til hinn fullkomna sportbíl.
Árið 1994 þegar hann var 22 ára hófst hann
handa með hjálp lítils hóps vélvirkja og
stuðningi frá Volvo og Ford. Í fyrstu var vélin
frá Ford en bíllinn var prófaður í vindgöngum
hjá Volvo.
Hraðskreiðasti götubíll sögunnar
Núna framleiðir Koenigsegg líka vélina í
flaggskipið Koenigsegg CCx. Það er nett
kerra sem nær 100 kílómetra hraða á 3,2
sekúndum og hefur mælst á 417 kílómetra
hraða á klukkustund samkvæmt opinberum
gögnum. Koenigsegg CCx mun vera hrað-
skreiðasti sportbíll sögunnar.
Halldóra er hins vegar ekki bíladellukona.
Fjármál og rekstur eru hennar fag. Og fjöl-
skyldulífið. Þau hjón eiga tvo syni, þriggja og
átta ára.
Þuríður móðir Halldóru býr í Helsingjaborg
og vinnur þar með núverandi eiginmanni
sínum á tannlæknastofu þeirra hjóna.
Tryggvi er í Bandaríkjunum og kvæntur þar.
Bílasmiðja Koenigsegg er nú að 49
prósent hluta í eigu norska fjárfestisins Bård
Eker. Hann og fleiri peningamenn frá Noregi
hafa mikinn hug á að eignast Saab.
Í sumar ræðst væntanlega hvort fjár-
festar að baki Koenigsegg ná að draga
saman fjármagn til að kaupa Saab. Það er
stærðarmunur á þessum fyrirtækjum: Saab
framleiðir nær 100 þúsund bíla á ári en
Koeningsegg bara 20. Og nú ætlar Davíð að
bjarga Golíat.
Halldóra Tryggvadóttir von Koenigsegg framkvæmdastjóri Koenigsegg bílasmiðjunnar.
Hvað er Koenigsegg?
1972: Christian Erland Harald von
Koenigsegg fæðist í Stokkhólmi.
1977: Sér fimm ára gamall brúðumyndina
Álfhól. Þar segir frá reiðhjólaviðgerðamann-
inum Reodor Felgen og kappakstursbíl
hans: Il Tempo Gigante. Christian ákveður
að fylgja í hjólför Felgens.
1992: Stofnar fyrirtækið Alpraaz og hefur
verslunarviðskipti í Stokkhólmi. Græðist fé.
Alpraaz er einn eigenda Koenigsegg.
1994: Stofnar með aðstoð Volvo og Ford
bílasmiðjuna Koenigsegg til að framleiða
hinn fullkomna sportbíl: Koenigsegg CC.
1996: Koenigsegg CC sýndur opinberlega í
fyrsta sinn.
!997: Fyrirtækið fær aðstöðu á herflugvelli
nærri Ängelholm á Skáni. Fær leyfi sænska
flughersins til að prófa bíla sína á vellinum.
1998: Framleiðsla á Koenigsegg CC hafin.
2002: Ný útgáfa, Koenigsegg CC8S, kynnt.
Fyrsti löglegi götubíllinn seldur.
2003: Stórbruni hjá Koenigsegg í Ängelholm
og endurbygging.
2004: Enn ný útgáfa, Koenigsegg CCR,
kynnt.
2005: Koenigsegg CCR skráður í heims-
metabók Guinness sem hraðskreiðasti
götubíll sögunnar.
2006: Núverandi útgáfa, Koeningsegg CCx,
sýndur í fyrsta sinn.
2007: Afbrigðið Koenigsegg CCxR með
vistvænni vél kynnt.
2008: Koenigsegg CCx slær met
Koenigsegg CCR sem hraðskreiðasti
götubíllinn.
2009: Viðræður um kaup á Saab.3