Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 13
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 13
Fyrst þetta ...
Birna Rún MBA 2006 og Tinna
Hrafnsdóttir MBA 2007.
Tinna Gunnlaugsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir, Svafa Grönfeldt,
rektor HR, og Ingunn Vilhjálmsdóttir.
Stjórn Emblu. Frá vinstri: Selma Árnadóttir, Auður Einarsdóttir, Bryndís Emilsdóttir, Gréta
Hlöðversdóttir, Sólveig Lilja Einarsdóttir og Esther Finnbogadóttir. Á myndina vantar Þóreyju
Vilhjálmsdóttur sem er á vegum HR í Kína.
NýTT FéLaG:
Emblurnar í HR
um 100 konur, allar með
MBa-gráðu frá Háskólanum í
Reykjavík auk kvenna sem enn
eru í náminu, komu saman í
október sl. til að stofna nýtt
félag – Emblur. Þetta er nýr
vettvangur kvenna til áhrifa
í viðskiptalífinu og mikilvæg
viðbót.
Tilgangur félagsins er
að nýta krafta þeirra öflugu
kvenna sem útskrifast ár hvert
úr MBa-náminu til að miðla
reynslu og þekkingu og opna
fyrir umræður um mikilvæg
málefni. Sérstaða og einn
helsti styrkur hópsins er að
þar koma saman konur sem
hafa farið í gegnum sama
mastersnám en eru með mjög
fjölbreyttan bakgrunn og
reynslu.
Á fundinum fluttu ávörp
Svafa Grönfeldt rektor, Lára
V. júlíusdóttir hrl., Ásdís
Halla Bragadóttir MBa
2008, aðalsteinn Leifsson,
forstöðumaður MBa-náms við
HR, og Þórdís Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Dagsbrúnar.
Þau voru sammála um að
Emblurnar væru mikilvæg viðbót
við tengslanet viðskiptalífsins.
Framkvæmda-stýrur eru þær
Gréta Hlöðversdóttir MBa 2007
og auður Einarsdóttir MBa
2007.
VEL ÞRIFIÐ FYRIRTÆKI
– vellíðan á vinnustaðnum
Láttu okkur þrífa fyrirtækið þitt Sólarræsting ehf. • Kleppsmýrarvegi 8104 Reykjavík • Sími. 581 4000
Fax. 581 4000 • solarraesting.is