Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 14

Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 14
14 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 Fyrst þetta ... LOGOS 100 ára Stærsta lögmannsstofa landsins, Logos, fagnaði hinn 26. október sl. 100 ára óslitinni lögmannsþjónustu. Stofan rekur sögu sína aftur til ársins 1907 þegar Sveinn Björnsson, síðar fyrsti forseti Íslands, opnaði fyrstu lögmannsstofu landsins. Gunnar Sturluson hrl. er framkvæmdastjóri Logos en stofan er til húsa að Efstaleiti 5 í Reykjavík. Hundruð gesta og viðskiptavina sóttu Logos heim í tilefni afmælisins. Á þessum merku tímamótum hefur LoGoS skrifað undir samning við Háskóla Íslands um að kosta lektorsstöðu í stjórnsýslurétti til næstu þriggja ára. Egill Ólafsson í gervi Friðriks VIII Danakonungs skálar fyrir LOGOS og 100 ára óslitinni lögmanns- þjónustu stofunnar. Jakob Möller hrl., fyrrum einn eigenda LOGOS, nú ráðgefandi, ritar nafn sitt í gestabókina. Við hlið hans er dæmigerður ritari upp á gamla móðinn og fyrir aftan Jakob stendur Dagný Guðlaugsdóttir, fyrrverandi starfsmaður. Tákn um tímana tvenna. Þessar hefðarmeyjar voru í afmælinu og minntu gesti á að stofan var „ekki stofnuð í gær“. Nokkrir af efnilegum fulltrúum LOGOS. Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri SPRON Factoring, Valfríður Möller, Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, Hjördís Ásberg, eigandi Manns lifandi, og Helena Hilmarsdóttir, löggiltur endurskoðandi.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.