Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 18
1 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
ótrúlegum árangri í viðskiptum. Eitt gamalt hótel er bara eins og eitt
lítið herbergi í samanburði við aðrar fasteignir NP – það er að segja í
gólffleti mælt.
En þarna kemur til að Hotel D´Angleterre er miklu frægara en
iðngarðar í Eystrasaltslöndunum og Póllandi. Fjárfestingafélag Gísla á
nær 700.000 fermetra í slíku húsnæði. En Gísli viðurkennir að Hotel
D´Angleterre er dýrgripurinn í safninu, þó svo að honum finnsit þetta
vera líka bara enn ein fjárfestingin í langri sögu Nordic Partners.
Og svona er þetta með frægðina. Það er ekki nóg að spila vel í
grúppunni – menn verða líka að slá í gegn og það
gerðu Gísli og Nordic Partners fyrr á þessu ári með
kaupunum á þessu frægasta hóteli Norðurlanda.
Óþekktir á Íslandi
„Það er alveg rétt að við í Nordic Partners
erum ekkert sérstaklega þekktir á Íslandi þótt
móðurfélagið sé skráð þar,“ segir Gísli og nú
eru samlokurnar komnar á borðið. Gísli er ekki
óvanur því að bera fram mat því sem unglingur
vann hann á Grillborg í Hamraborg í Kópavogi
og afgreiddi hamborgara með frönskum og kokkteilsósu – en höldum
okkur við efnið: Af hverju fór svo hljótt um Gísla og Nordic Partners
áður en þeir keyptu Hotel D´Angleterre?
„Ég fór tvítugur frá Íslandi til náms í Bandaríkjunum,“ heldur
Gísli áfram. „Eftir það hef ég lítið verið á Íslandi. Viðskipti okkar
eru nær öll í öðrum löndum. 98-99 prósent af starfseminni er utan
Íslands. Við höfum ekki verið áberandi í fjárfestingum á Íslandi og
þar af leiðandi ekki verið í sviðsljósinu þar.“
Nordic Partner hefur alls ekki verið áberandi fyrirtæki og Gísli
bendir á að félagið hafi ekki einu sinni komið sér upp heimasíðu á
Netinu, þó það standi nú til bóta.
Seldi tölur yfir leikfangaborð
Starfsemi NP er mest í Lettlandi en einnig í hinum Eystrasaltsríkjunum,
Eistlandi og Litháen auk Póllands. Og Gísli segir að samsteypan sé
byrjuð að þreifa fyrir sér með fjárfestingar í
Georgíu og fleiri nýjum löndum. Ríga, höfuðborg
Lettlands, er miðpunktur starfseminnar þótt
móðurfélagið sé með höfuðstöðvar að Suðurgötu
10 í Reykjavík. Í Ríga er hjarta starfseminnar í
stóru húsi í gömlu miðborginni.
En af hverju eru Ríga og Eystrasaltslöndin
starfsvettvangur Gísla og félaga hans? Það er
löng saga með mörgum tilviljunum. En sagan
er eiginlega svona: Þegar Gísli var að alast
upp í Kópavoginum – hann er fæddur árið
1965 – veittu foreldrar hans því athygli að strákur hafði áhuga á
viðskiptum. Þriggja til fjögurra ára gamall var hann að reyna að
koma gömlum tölum í verð með því að selja þær yfir leikfangaborð,
sem hann átti.
„Það lá alltaf í loftinu að þegar ég hefði aldur til færi ég til náms
í viðskiptafræði í Bandaríkjunum,“ segir Gísli. „Þetta var bara eins
„Það er bara svo,
að kaup á einu frægu
hóteli vekja miklu
meiri athygli en
aðrar fjárfestingar
í húsnæði.“
Helstu eiGnir samsteypunnar:
NP PROPERTIES-
Fasteignir
Iðnaðar- og
verksmiðjuhúsnæði
í Eistlandi, Lettlandi,
Litháen og Póllandi alls
nær 700.000 fermetrar.
Mest skipulagðir iðn- og
tæknigarðar leigðir út með
þjónustu. Um 200.000
fermetrar hafa bæst við
á þessu ári. Um 200
hektarar byggingarlands
á mismunandi stigum
þróunar.
NP Confectionary
- matar- og
drykkjarvöru-
framleiðsla
Alls 8 verksmiðjur í
Eystrasaltslöndunum.
Starfsemin skiptist í
þrennt:
NP-Hotels
Þrjú hótel í miðborg
Kaupmannahafnar: Hotel
D´Angleterre, Front
Hotel og Hotel Kong
Frederik. Veitingastaðurinn
Chopenhagen Corner.
A13
Tíu íbúðir í húsinu
„Lille Amalienborg“ í
Kaupmannahöfn. Bæði til
leigu og nota fyrir NP.
Icejet
Fimm einkaþotur, 14 sæta,
skráðar á Íslandi og með
fullt flugrekstrarleyfi. Bæði
til leigu og nota fyrir NP.
Skyld félög í þjónustu við
flugreksturinn.
Þekkt vörumerki: Laima, Staburadze, Gutta, Eurofood,
Margiris og Artur Lider. Velta: Nær 20 milljarðar ísl. kr.
A.
Sælgæti,
kex og
kökur.
B.
Pítsur,
salöt og
samlokur.
C.
Djús, vatn
og gos.
Nordic Partners ehf.