Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2007, Side 23

Frjáls verslun - 01.09.2007, Side 23
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 23 Forsíðuviðtal Gísli segir að NP stefni að enn stærri hlut á þessum neysluvörumarkaði. Þarna séu vaxtarmöguleikar og tíðinda að vænta í framtíðinni. Líkar við Letta En af hverju þessi hrifning á Lettum og hinni sögufrægu höfuðborg þeirra, Ríga? „Já, þetta er stórkostlegt fólk,“ segir Gísli. „Ég hreifst strax í upphafi af hugarfarinu. Það var eins og ákafinn og viljinn geislaði úr andlitunum. Lettar voru alltaf í nánum tengslum við Skandinavíu og Þýskaland. Ríga er gömul Hansaborg. Egill Skallagrímsson kom líka til Ríga! Hugsunarháttur Letta er líkur því sem við þekkjum. Menningin er greinilega skyld. Það er gríðarlegur munur á að stunda viðskipti í Lettlandi eða í Rússlandi. Hugsunarhátturinn er allt annar, menningin allt önnur og sagan allt önnur. Þess vegna hef ég viljað vera í Ríga og nágrannalöndunum. Rússland hefur síður vakið áhuga minn, þó svo að ég skilji hve stór tækifærin þar eru. Eystrasaltslöndin höfðuðu frá upphafi sterklega til mín þar sem þeirra heimsmynd og verðmætaskyn var svo miku skyldara því sem ég mat svo mikils.“ Gísli segir að meðal Letta komi oft fram það viðhorf að þeir hafi misst af tækifærum þann tíma sem landið var undir Sovétstjórninni. Þeir þurfi að vinna upp forskot sem þjóðirnar í Vestur-Evrópu fengu meðan þeir voru sjálfur undirokaðir og hafi þann metnað sem þarf til að ná þeim árangri. Þetta veldur því að erlendum fjárfestum er vel tekið, að sögn Gísla. Síðustu árin hefur Gísli haft lögheimili í Ríga. Hann er mikið þar en fjölskyldan heldur í raun hús í þremur höfuðborgum: í Reykjavík, í Kaupmannahöfn og í Ríga, en er með lögheimili á Íslandi. Hetjan Jón Baldvin Gísli er einnig aðalræðismaður Íslands í Ríga. Það hefur hann verið frá 1999 og t.d. meðan Jón Baldvin Hannibalsson var sendiherra í Helsinki en Lettland heyrði undir það sendiráð. Gísli segir að frægð Jóns Baldvins sé mikil í öllum Eystrasaltslöndunum frá því að landið hlaut sjálfstæði og Íslendingar urðu fyrstir þjóða til að viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Og að utanríkisráðherrann Jón Bandvin kom og var á staðnum þegar mannfjöldi mætti skriðdrekum Sovétmanna, einn erlendra stjórnmálamanna. Gísli Þór Reynisson hefur verið bissnesmaður frá fermingaraldri. Hann er með doktorsgráðu í fjármálafræðum og vann við rannsóknir við Harvard þegar hann tók af skarið og hellti sér út í viðskipti.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.