Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 39

Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 39
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 39 n æ r m y n d a f þ ó r u n n i g u ð m u n d s d ó t t u r tóta er afreksmanneskja sem hefur gaman af því að takast á við erfið verkefni sem hún leysir vel af hendi. Hún hefur t.d. klifið bæði Kilimanjaro og Kenýafjall auk íslenskra fjalla eins og Öræfajökuls. málum sem eru í deiglunni og er einna mest áberandi kvenlögmaður landsins. Þórunn er sérstakur sérfræðingur í samkeppnisrétti sem starfar einna helst fyrir viðskiptalífið og vílar ekki fyrir sér að taka að sér viðamikil og stundum umdeild mál. utan vinnunnar er Þórunn mikil fjallageit og útivistarmanneskja, en hún má helst ekki sjá fjall hér- eða erlendis því þá vill hún klífa það.“ Þórunn J. Hafstein: Heilsteyptur gleðigjafi „Við Þórunn kynntumst í lagadeildinni þar sem við vorum í skemmtilegum vinahópi sem hefur haldið hópinn síðan þá,“ segir Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. „Í háskólanum lásum við saman í Lögbergi tímunum saman og tókum mikinn þátt í félags- og skemmtanalífinu þess á milli. Þórunn er afskaplega heilsteypt, góð og traust manneskja jafnt í leik sem starfi og alltaf jafn skemmtileg. Hún er gleðigjafi og hefur þau áhrif með nærveru sinni hvar sem hún er að skemmtilegt fólk verður enn skemmtilegra og leiðinlegt fólk á einhvern undraverðan hátt einnig þrælskemmtilegt. Þórunn er glaðsinna og hressileiki hennar er smitandi, hún er afar traustur og góður vinur og maður veit alltaf hvar maður hefur hana. Þeir eiginleikar sýna sig einnig hvernig hún nálgast öll þau verkefni sem hún tekur sér fyrir hendur. Þau eru unnin af heiðarleika og dugnaði. Þá er hún dugleg og náttúrulega algjör hetja eins og sannast best á fjallgöngunum sem hún hefur farið í út um allan heim. Við Þórunn umgöngumst mikið og finnst gott að hittast og spjalla saman. Þá erum við saman í gourmet matarklúbbi sem reyndar hefur að vísu breyst í gourmet skyndibitaklúbb í önnum dagsins en hann er ekkert síðri fyrir það.“ sunnanverð afríka heillandi Þórunn, sem er ógift og barnlaus, nýtir frítímann vel og hefur gaman af ýmiss konar útivist, hreyfingu og ferðalögum. Hún er meðlimur í mjög merkum sex manna félagsskap sem kallast Jöklarannsóknadeild landlæknis og fer yfirleitt á hverju vori í skíðagönguferð á einhvern jökulinn, en á þeim ferðum hefur hún mætt vályndum veðrum og lent í ýmsum uppákomum. Þá fer hún í ræktina fimm sinnum í viku. Þórunn hefur gaman af því að ferðast til framandi landa og segir að sunnanverð Afríka hafi fangað sig algjörlega. Þangað fór hún fyrst árið 2003 og hefur nú farið í fimm ferðir þar sem hún hefur klifið Kilimanjaro og Kenýafjall og farið í safaríferðir. Þá eyddi hún síðustu jólum og áramótum hjá Sigurði bróður sínum og Sigríði konu hans í Malaví þar sem þau bjuggu og í ágúst síðastliðnum heimsótti hún þau á nýjan leik og fór með þeim til Sambíu og að Viktoríufossunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.