Frjáls verslun - 01.09.2007, Side 43
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 43
„Ég sé fyrir mér að kjaraviðræðurnar
verði erfiðar. Það eru uppi harðar kröfur
um að bæta kjör þeirra lægst launuðu, að
launaskriðið, sem hefur verið einkennandi á
vinnumarkaði, nái líka til þeirra sem vinna
að umönnun og í frumframleiðslunni,“ segir
Signý.
„Ég sé ekki að þessi mál verði leyst
eingöngu með viðræðum launþega og
vinuveitenda. Ríkisvaldið hlýtur að koma
þar inní eins og reyndar alltaf er. En þetta
verður þungt,“ segir Signý.
passa börn eða telja peninga
„Og þunginn kemur af því að allir sem vilja
sjá sjá vaxandi misskiptingu í þjóðfélaginu,“
segir Signý. „Fólki finnst það einfaldlega
óréttlátt að það sé betur borgað að telja
peninga en að passa börn.“
Þjóðfélagið breytist ört. Hagkerfið
er að breytast úr framleiðsluhagkerfi í
peningahagkerfi þar sem það að höndla
með peninga er sjálf tekjulindin. Laun
fólks sem vinnur í bönkum og öðrum
peningastofnunum hækka örar en laun
annarra. Fiskvinnslan situr eftir. Ófaglært
fólk á leikskólum, á sjúkrahúsum og í
umönnunarstörfum situr eftir. Óánægjan
kemur upp á yfirborðið hvort sem mönnum
líkar betur eða verr.
Hjá Starfsgreinasambandinu var þessum
breytingum lýst svona í ályktun í haust:
„Hagkerfið á Íslandi er fjórklofið; svarta
hagkerfið, verðtryggða krónuhagkerfið,
óverðtryggða krónu- og okrarahagkerfið og
loks evruhagkerfi viðskiptalífsins sem þarf
að eiga ábyggileg samskipti við útlendinga
erlendis.“
„Sumir njóta góðærisins og launaskriðs
vegna þess að það vantar vinnuafl. Aðrir
verða bara varir við aukið vinnuálag og eru
að gefast upp,“ segir Signý.
„Þetta er bæði vandi ríkisstjórnarinnar og
vandi einstakra starfsgreina og verður ekki
leystur nema með þríhliða viðræðum,“ segir
Signý. „Þetta verður heitur vetur.“
Ætlar ingibjörg að bjóða sig
fram til forseta að ári, ef grétar
Þorsteinsson hættir, og verða
fyrsta konan í forsetaembætti
asÍ? Þeirri spurningu
svarar hún einfaldlega:
„eitt ár er langur tími.“
á t ö k i n í a s í
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir.
Verður hún fyrsti kvenforseti ASÍ?
starfsGreinasambandið
Niðurstaðan er að þótt
starfsgreinasambandið sé
stærsta sambandið innan asÍ
og það samband sem er í
mestum vexti þá er styrkur þess
minni en samiðnar, samtaka
iðnaðarmanna, og landsambands
íslenzkra verzlunarmanna.