Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 44
fréttaskýring: gísli kristjánsson
Myndir: geir ólafsson o. fl.
35 (+/-) kynslóðin. Það er ný kynslóð
stjórnmálamanna, sem á næstu árum tekur
við stjórn landsins. Kynslóð sem sumir
vilja kalla rEi-krakkana. Eins og dagur
B. Eggertsson borgarstjóri er þetta fólk
fætt árið 1972 og á árunum þar í kring.
Hæfileikaríkt dugnaðarfólk? Eða bara
dekurbörn sem aldrei hafa dýft hendi í
kalt vatn? aldrei gert að fiski? aldrei ekið
hjólbörum í steypuvinnu?
44 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
Ný, uNG, meNNtuð oG málGlöð kyNslóð í ísleNskum stjórNmálum:
35
í pólitík
Þ
essi kynslóði er orðin umtöluð í stjórnmálum sem og
innan viðskiptalífsins. Þetta er fólk sem er í kringum
35 ára. Fólkið sem bylti gömlu borgarstjórninni og
myndaði þá nýju á mettíma er einmitt á þessum aldri.
Sumir segja að þetta sé ekki 35 (+/-) kynslóðin heldur
SMS-kynslóðin. Hvað um það? Innan viðskiptalífsins á
Íslandi er farið að ræða um þessa kynslóð sem harða og heimtufreka
– en að sama skapi duglega og metnaðarfulla. Sumir taka svo djúpt
í árinni að segja að hún geri meiri kröfur til annarra en sjálfrar sín.
Kannski hefur fólk á þessum aldri alltaf verið í brennideplinum
og þótt frekt; það er að stugga við þeim eldri og það getur virst
ögrandi.
Hvaða um það. Orkuveitumálið, samruni REI og GGE,
útrásin, sprunginn meirihluti borgarstjórnar og „gamli maðurinn“,
oddvitinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, í valnum. Þetta er talsvert
á skömmum tíma og ástæða þess að athyglin beinist nú að hinni
nýju kynslóð í stjórnmálunum, kynslóð sem er að verða áberandi í
Sjálfstæðisflokknum sem og í öðrum flokkum.
Þetta er fólkið, sem síðustu árin hefur vakið athygli hins
almenna kjósanda smátt og smátt, en er nú skyndilega orðið að
miðdepli umræðunnar. Hvaða fólk er þetta? Hverjir eru verðleikar
þess og veikleikar? Er þetta samstæður hópur með sameiginleg
+
–