Frjáls verslun - 01.09.2007, Page 61
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 61
s t j ó r n u n
Fjórir nÝir
FOrSTjórar
Sigurður Egill Ragnarsson er fæddur árið 1957 í Reykjavík, en foreldar hans eru þau Markúsína Guðnadóttir hárgreiðslumeistari og Sveinn Ragnar
Oddgeirsson, sem bæði eru látin, en faðir hans lést þegar
Sigurður Egill var innan við tveggja ára gamall. Hann á eina
systur, Helenu, þannig að fjölskyldan var lítil og náin.
Þau ólust þau upp í Voga- og Heimahverfinu þar sem þau
gengu í skóla, en Sigurður Egill fór síðan í Menntaskólann
við Tjörnina og síðan Háskóla Íslands, þaðan sem hann
útskrifaðist úr viðskiptafræði árið 1982. Hann byrjaði að
vinna hjá BYKO sem sumarstrákur í porti á Kársnesbrautinni
árið 1973 og hefur unnið þar alla sína hunds og kattartíð,
eins og hann segir sjálfur, en hann hóf fullt starf hjá BYKO
árið 1981 meðfram háskólanámi.
Fyrirtækið breyst og stækkað
„Ég hef fyrst og fremst starfað á byggingasviðinu eins og við
köllum það, það er að segja því sviði sem snýr að verktökum
og fagmönnum og grófum vörum eins og timbri, stáli,
plötum og öðru slíku, og var framkvæmdastjóri þar frá árinu
1984. Ég þekki hins vegar alla innviði fyrirtækisins mjög vel,
enda sat ég í mörg ár í stjórn BYKO hf. og sit í dag í stjórn
Norvíkur og kemur það sér einkar vel í starfi mínu, en þegar
Ásdís Halla ákvað að snúa sér að öðrum verkefnum bauðst
mér þetta starf. Fyrirtækið hefur breyst mikið í áranna rás og
stækkað gríðarlega, ekki síst síðustu árin og hefur reksturinn
hefur alla tíð gengið vel,“ segir Sigurður Egill.
Hvaða verkefni eru framundan?
Nú hefur BYKO nýlega opnað nýja verslun í Kauptúni sem
nær yfir tæpa 13.000 m2 og er stærsta byggingavöruverslun
landsins undir einu þaki. Þetta hefur verið viðamikið
verkefni í alla staði og stór áfangi. Næst er að klára tvö önnur
verkefni sem eru komin í gang, byggingu tæplega 15.000
m2 vöruhúss í Skarfagörðum, enda fyrra húsnæði löngu
sprungið, og opnun nýrrar verslunar næsta vor að Fiskislóð
vestur á Granda, en í framhaldi því verður verslun okkar við
Hringbraut lokað. Við munum einnig flytja leigumarkaðinn
okkar í Hafnarfirði á milli húsa fyrri hluta næsta árs, en hann
fer í húsnæðið sem verslunin okkar var í. Við erum því að
stækka töluvert við okkur og lykilatriðið í því er að passa upp
á að viðskiptavinirnir fái góða þjónustu hjá okkur og til þess
þarf hæft og gott starfsfólk. Við erum svo sannarlega með
mikið af slíku fólki hjá BYKO og okkur hefur haldist vel á
starfsfólki í gegnum tíðina.
Fjölskyldan og ferðalög
Sigurður Egill er kvæntur Bryndísi S. Halldórsdóttur
hjúkrunarfræðingi og eiga þau þrjá syni, Svein Ragnar og
Gunnar Emil, sem eru 17 ára tvíburar, og Brynjar Geir, 12
ára. Fjölskyldan hefur mjög gaman af því að ferðast saman og
fara á skíði auk þess sem Sigurður Egill hefur gaman af því að
tefla. Þá á hann afar traustan vinahóp sem þekkst hefur síðan
á barnaskólaárunum og nýtur samvista við hann.
Hæft
starfsfólk
lykilatriðið
SIGURðUR EGILL RAGNARSSON,
NýR FORSTjóRI BYKO:
Sigurður Egill Ragnarsson, nýr forstjóri BYKO.