Frjáls verslun - 01.09.2007, Blaðsíða 62
62 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7
s t j ó r n u n
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, er fæddur í Reykja- vík þann 10. febrúar 1976. Hann útskrifaðist úr viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og var starfandi
með námi, fyrst sem sérfræðingur í greiningadeild þáverandi
Íslandsbanka og síðar hjá Alþjóða líftryggingafélaginu sem
síðar varð Kaupþing líftryggingar.
Eftir útskrift var Sigurður ráðinn sem fjármálastjóri hjá
Kaupþingi líftryggingum og starfaði sem slíkur til ársins 2005,
þegar hann tók við fjármála- og vátryggingasviði, auk þess að
starfa sem staðgengill forstjóra.
Spennandi tækifæri
Sigurður segir aðdraganda þess að hann var ráðinn til TM
hafa verið mjög skamman. Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri
FL Group, hafi heyrt af sér og því haft samband og viðrað
hugmyndina við sig. „Þetta var spennandi tækifæri fyrir mig
og starfið kemur inn á svið sem ég þekki vel til þar sem ég hef
alla mína starfsævi starfað í fjármála- og tryggingageiranum,“
segir Sigurður. Hann segir að vissu leyti hafa verið erfitt að láta
af störfum hjá Kaupþingi líftryggingum og ef til vill hefði legið
beinast við að taka þar við forstjórastarfi, en hjá TM bíði stærri
verkefni og því hafi hann aldrei verið í vafa um ákvörðunina.
Hver eru helstu verkefnin sem liggja fyrir?
„Stærsta verkefnið er að ná viðunandi afkomu í vátrygginga-
starfseminni. Þetta hefur verið helsta vandamál félagsins
hingað til og ég tel að ég hafi verið fenginn í starfið vegna
bakgrunns míns í slíkri starfsemi. Fyrsta verkefnið er því
klárlega að skoða hvernig við getum bætt okkur á þessu
sviði og að endurskipuleggja endurtryggingasamninga,“ segir
Sigurður.
ekkert baktjaldamakk
Ekki er sjálfgefið að öllum líki vel í stjórnunarstöðum en
Sigurður segir að slíkt hafi ætíð átt vel við sig, enda hafi hann
í sjálfu sér verið í stjórnunarstöðu frá upphafi starfsferils síns.
Aðspurður hvað einkenni góðan stjórnanda er Sigurður skjótur
til svars og segir hreinskilni vera lykilatriði þar sem mun betra
sé að hafa öll mál uppi á borðinu og sleppa baktjaldamakki.
Hvernig leggst starfið í þig nú í byrjun?
„Það leggst vel í mig að koma til starfa hjá fyrirtækinu þótt
vissulega komi ég úr öðruvísi og opnara vinnuumhverfi þar
sem maður er í nánum samskiptum við sitt samstarfsfólk.
Hér er þetta meira eins og í gamla daga þar sem maður hefur
til umráða stóra forstjóraskrifstofu og er ekki í jafnmiklum
samskiptum við hinn almenna starfsmann. Ég vil vera á
gólfinu ef svo má segja og í samskiptum við fólkið sem ég er að
vinna með. Þetta er því eitthvað sem ég myndi vilja breyta og
koma á nútímalegri vinnukúltúr í fyrirtækinu. Að öðru leyti
mun ég leggja áherslu á að reka arðsaman vátryggingastofn og
þá með frekari áherslu á arðsemi heldur en markaðshlutdeild.
Golf og útivist
„Það er annasamur tími framundan en ég nota hvert tækifæri
til að eyða tíma með eiginkonunni og syninum. Síðan hef
mjög gaman af því að spila golf á sumrin og á veturna fer ég
mikið á fjöll á vélsleða og jeppa, ég er mikill útivistarmaður
og nýt þess að komast út fyrir borgina,“ segir Sigurður að
lokum.
Hreinskilni
er lykilatriði
Sigurður Viðarsson, nýr forstjóri TM.
SIGURðUR VIðARSSON,
NýR FORSTjóRI TM: