Frjáls verslun - 01.09.2007, Qupperneq 63
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 7 63
s t j ó r n u n
Guðmundur Örn Gunnarsson mun taka við starfi forstjóra VÍS í upphafi næsta árs. Guðmundur er fæddur árið 1963 og uppalinn í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi hélt hann
til Kaupmannahafnar og nam stærðfræði um tíma eða þar til hann
hóf störf hjá Tryggingamiðstöðinni árið 1984. Hann kenndi einnig
stærðfræði við Menntaskólann við Sund veturinn 1984-1985.
Guðmundur fékkst við ýmis stjórnunarstörf hjá TM, lengst af í
upplýsingatæknideild, en einnig sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
og síðar viðskiptaþróunar. Því starfi gegndi hann uns honum bauðst
af taka við forstjórastarfi hjá VÍS.
Víðtæk reynsla
Guðmundur segir að haft hafi verið samband við sig til að kanna hvort
hann væri reiðubúinn til þess að taka starfið að sér. Vísað hefði verið
í víðtæka reynslu hans á tryggingasviði og sér hefði strax fundist þetta
spennandi áskorun til að takast á við. „Í byrjun starfsferils míns voru
tölvurnar að ryðja sér til rúms og ég var mikið viðloðandi tölvumál
í byrjun. Sú reynsla hefur síðan nýst mér vel í þeim mismunandi
verkefnum sem ég hef tekið að mér eftir það,“ segir Guðmundur.
Hver eru helstu verkefnin sem liggja fyrir?
„Mitt starf felur í sér að efla VÍS enn frekar og halda áfram því góða
starfi sem unnið hefur verið hér á síðustu árum. Í þessu felst að snúa
afkomu af vátryggingum úr því tapi sem verið hefur á undanförnum
árum, líkt og hjá öðrum tryggingafélögum hér á landi, og sjá til þess
að það verði eðlileg afkoma af vátryggingastarfsseminni til framtíðar.
Í öðru lagi hefur VÍS verið framarlega í forvarnastarfi og við ætlum
að halda áfram á þeirri braut að reyna að koma í veg fyrir tjónin, því
það er náttúrlega öllum til heilla,“ segir Guðmundur.
dreifing valds
Aðspurður hvernig honum líki að taka við forstjórastarfinu segir
Guðmundur að til þess að hlutir gangi upp í fyrirtæki af þeirri
stærðargráðu sem VÍS er, sé mikilvægt að hafa gott stjórnunarteymi
í kringum sig. „Það sem einkennir góðan stjórnanda er að kunna að
dreifa valdinu til samstarfsmanna,“ segir Guðmundur.
Hvernig leggst starfið í þig nú í byrjun?
„Það er áskorun að koma inn í nýtt fyrirtæki þar sem maður þarf að
tileinka sér nýja vinnuhætti, sem eru hvorki verri né betri en maður er
vanur, einfaldlega öðruvísi. Það er mikill kostur fyrir mig að koma inn
í félag sem hefur verið byggt upp jafn vel og raun ber vitni af Ásgeiri
Baldurs, forvera mínum hjá VÍS. Auðvitað fylgja nýir siðir nýjum
herra en engra róttækra breytinga er þörf innan fyrirtækisins. Ég legg
áherslu á að vinna náið með fólki og virkja þær hugmyndir sem eru
til staðar innan fyrirtækisins. Þá býst ég við að í nánustu framtíð verði
lögð áhersla á öfluga upplýsingatækni og ég sé þar ákveðin sóknarfæri.
Ég mun hefja störf strax eftir áramót og mun í fyrstu einbeita mér
að því að kynnast vel fyrirtækinu og starfsfólkinu. Í framhaldi af því
koma svo áherslurnar í ljós,“ segir Guðmundur.
Ferðalög og skíði
„Ég nýti frítímann með fjölskyldu og vinum, ég er kvæntur og á
þrjú börn og förum við fjölskyldan saman á skíði og ferðumst,“ segir
Guðmundur að lokum.
áhersla á að vinna
náið með fólki
Guðmundur Örn Gunnarsson, nýr forstjóri VÍS.
GUðMUNDUR öRN GUNNARSSON, NýR FORSTjóRI VÍS: